Töluvert var um innbrot, ekki síst í bíla, og þjófnaði í Reykjavík frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.Þetta kemur fram í dagbók lögreglu sem barst fjölmiðlum óvenju seint að þessu sinni.Tilkynnt var um að ráðist hafi verið á leigubílstjóra í Hlíðunum. Málið er í rannsókn. Tvær tilkynningar bárust um þjófnað úr verslun í Hlíðunum. Gerendur voru í báðum tilfellum á staðnum er lögreglu bar að garði. Þess er ekki getið hvort um sömu verslun var að ræða í báðum málum.Tilkynnt var um innbrot í bifreið í Hlíðunum. Málið er í rannsókn.
Töluverður fjöldi þjófnaða og innbrota í dag