Við fjöllum um þessar vendingar í hádegisfréttum okkar á Bylgjunni klukkan tólf og leitum viðbragða við tíðindunum niðri á Alþingi.
Einnig verður greint frá því að aldrei hafi verið lagt hald á meira magn af kókaíni hér á landi en í ár, fyrra metið frá því í fyrra, er kolfallið.
Að auki fjöllum við um dag íslenskrar tungu sem er haldinn hátíðlegur í dag á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar og meðal annars verður rætt við Loga Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Í íþróttapakka dagsins verður svo hitað upp fyrir leik Íslendinga við Lúxemborg í Þjóðadeildinni sem fram fer í kvöld í fimbulkulda.