Erna Bjarnadóttir skrifar:
Daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst hélt ríkisstjórnin blaðamannafund klukkan 13 til að fara yfir stöðuna. Strax á þeim fundi bar nauðsyn lagabreytinga vegna bókunar 35 á góma. Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir beitt sér mest fyrir framhaldi aðildarviðræðna, enda var Viðreisn nánast stofnuð um það mál. Eins og allir muna höfnuðu kjósendur því að taka viðræðurnar upp á ný.
Um kvöldið lagði Þorgerður Katrín til í Silfrinu á RÚV að annaðhvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eða Guðrún Hafsteinsdóttir yrði fyrsti flutningsmaður frumvarpsins um bókun 35. Með því gætu þau, að hennar mati, sýnt stuðning sinn við EES-samninginn. Þegar Sigmundur Davíð mótmælti gaf hún í skyn að stuðningur þeirra við samninginn hefði kannski verið innantómur. Morgunblaðið rakti orðaskiptin.
Þannig gerði ráðherrann stuðning við eitt tiltekið frumvarp að prófsteini á stuðning við EES-samninginn. Hvers vegna lagði hún þetta próf fyrir forystumenn flokka sem höfðu lagst gegn því að taka upp aðildarviðræður á ný? Og hvers vegna lá henni svona á að efna til deilna við stjórnarandstöðuna strax daginn eftir að kjósendur höfnuðu því sem hún hafði barist fyrir?
Iðrunarverk í Brussel
Svarið liggur beint við. Utanríkisráðherra hafði bundið pólitískt verkefni sitt við Brussel. Þar hafði hún gefið til kynna að Ísland væri reiðubúið að halda á ný í átt að aðild. Kjósendur höfnuðu því afdráttarlaust. Hún fór fyrir baráttunni og tapaði henni. Ráðherra sem snýr tómhentur aftur til Brussel þarf að hafa eitthvað fram að færa. Forystumenn ESB höfðu verið látnir vænta þess að Ísland væri á leið aftur að samningaborðinu en fengu skýrt nei í staðinn. Það hlýtur að hafa verið álitshnekkir fyrir ESB og erfitt að kyngja þeirri niðurstöðu. Þá lá beinast við að tefla fram frumvarpinu um bókun 35. Með því mátti sýna stofnunum ESB velvilja og gefa til kynna að Ísland myndi láta að vilja þeirra þótt það gengi ekki í sambandið. Hér virðist því fremur um iðrunarverk að ræða en lagalega nauðsyn. Ráðherrann varpar sér nú í duftið í Brussel til að bæta fyrir ósigurinn heima.
Á aðalfundi Nei til EU í Noregi í byrjun nóvember kom skýrt fram hversu miklu íslenska nei-ið skipti að mati fundarmanna. Íslenskt já hefði getað hleypt nýju lífi í umræðu um aðild Noregs að ESB. Noregur býr yfir mikilli olíu, gasi og gríðarlegri vatnsorku. Það gerir landið sérlega eftirsóknarvert fyrir ESB. Niðurstaðan á Íslandi undirstrikaði því vanda sambandsins: Það laðar til sín fátækari ríki í leit að stuðningi en á erfiðara með að sannfæra velmegandi ríki utan þess um að þau standi betur innan þess.
Á erlendri grundu hagar ráðherrann sér eins og kjúklingur: Hún vill þóknast, er fljót að gefa eftir og treg til að verja réttarstöðu Íslands gagnvart stofnununum í Brussel og Lúxemborg. Heima leikur hún haukinn: Hún les leiðtogum stjórnarandstöðunnar pistilinn um hollustu við EES og dregur í efa einlægni þeirra sem höfðu nýverið haft betur í atkvæðagreiðslunni. Hlutverkin fara vel saman. Því harðar sem hún sækir fram heima, þeim mun meira hefur hún fram að færa úti.
Fyrst dómstóllinn, síðan löggjafinn
Þorgerður Katrín hafði þegar lagt fram frumvarp um bókun 35 í febrúar 2025 og aftur í september sama ár. Frumvarpið var því á dagskrá löngu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Staða málsins breyttist nokkrum vikum síðar. Eftir að utanríkisráðherra lagði frumvarpið fram 22. september 2026, kom ESA (Eftirlitsstofnun EFTA) átta dögum síðar og vísaði málinu til EFTA-dómstólsins. En fyrir dómstólnum getur Ísland lagt fram rök sín fyrir því að íslensk lög uppfylli kröfur bókunar 35. Komist dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að úrbóta sé þörf getur Alþingi ákveðið í ljósi dómsins hverjar þær eigi að vera. Nú þegar málið er komið fyrir dóm er eðlilegt að hafa þá röð á: fyrst dómstóllinn, síðan löggjafinn.
Ísland hefur rök fram að færa. Í bókun 35 er tekið fram að EES-samningurinn feli ekki í sér framsal löggjafarvalds til stofnunar EES og að forgangsreglu skuli lögfesta „ef þörf krefur“. Frá árinu 1993 hefur 3. gr. EES-laganna mælt fyrir um að íslensk lög skuli, að svo miklu leyti sem við á, skýrð til samræmis við EES-samninginn og reglur sem á honum byggja. Hvort sú lögskýringarregla dugi er einmitt það sem reynir á í málinu. Með því að halda uppi vörnum væri Ísland einfaldlega að nýta þá leið sem tveggja stoða kerfið býður upp á. Það er hlutverk EFTA-dómstólsins að skera úr þessum ágreiningi.
Meginmálið er hvaða málsvörn ríkisstjórnin ætlar að halda uppi fyrir Íslands hönd. Í nær tvo áratugi frá gildistöku EES-samningsins gerði ESA ekki athugasemdir við það hvernig Ísland hafði innleitt bókun 35. Stofnunin segir sjálf að hún hafi fyrst gert athugasemdir árið 2012 í kjölfar dóma Hæstaréttar. Hvað hefur breyst frá því að samningurinn var gerður? Hvað sýna dómarnir um hvernig íslensku reglurnar virka í reynd og hvers vegna telur ESA að það kalli á almenna forgangsreglu? Þetta eru spurningar sem Ísland á að láta reyna á fyrir dómi.
Einn lögmanna Íslands, Jóhannes Karl Sveinsson, taldi í grein á Innherja árið 2023 að lagabreyting væri löngu tímabær og að ESA hefði líklega betur ef málið færi fyrir dóm. Það mat segir ekki hvernig hann mun haga málsvörninni.
Að viðurkenna brot fyrir fram
Utanríkisráðherra hefur sjálf sagt að hún útiloki ekki að Ísland viðurkenni brot. Hefur lögmönnum Íslands verið falið að halda uppi fullri málsvörn? Eða á málsmeðferðin fyrir EFTA-dómstólnum að ljúka því sem ráðherrann hóf í Brussel: að sýna opinberlega undirgefni?
Að viðurkenna brot fyrir fram væri meira en ákvörðun um málsmeðferð. Það fæli í sér að ríkisstjórnin gæfi eftir í Lúxemborg afstöðu sem Alþingi hefur ekki fallið frá. Þingið stæði þá frammi fyrir orðnum hlut. Félli dómur á þeim grundvelli yrði frumvarpið lagt fyrir þingið sem leið til að framfylgja dómi í máli þar sem Ísland hefði ekki haldið uppi vörnum. Það væri líka sérkennileg framkoma við EFTA-dómstólinn, sem er einmitt til þess að EFTA-ríkin þurfi ekki að sæta dómi stofnana hinnar stoðarinnar.
Með því að leggja rök sín fyrir EFTA-dómstólinn stendur Ísland með EES-samningnum og sýnir í verki hvers vegna sjálfstæði EFTA-stoðarinnar skiptir máli. Uppgjöf fyrir fram sendir önnur skilaboð til Brussel: að EFTA-stoðin sé biðstofa en ekki stoð.
Hinn 29. ágúst tóku kjósendur afstöðu til þess hvort taka ætti upp aðildarviðræður á ný. Bókun 35 var ekki á kjörseðlinum. Ríkisstjórnin gæti sýnt niðurstöðunni virðingu með því að hlusta á þá sem sögðu nei þegar þeir færa rök fyrir því að Ísland verji nú mál sitt fyrir EFTA-dómstólnum. Ísland þarf utanríkisráðherra sem er haukur úti en sýnir nokkra auðmýkt heima. Nú er þessu öfugt farið.
Höfundur er hagfræðingur