Átta störf voru lögð niður í morgun en samkvæmt heimildum fréttastofu sendi Hildur Björnsdóttir borgarstjóri bréf til stjórnar Orkuveitunnar í byrjun mánaðar þar sem aukinnar hagræðingar er krafist.
Þá fjöllum við áfram um hlutafjárútboð Bláa lónsins en fyrirtækið greiddi tveimur greiningarfyrirtækjum fyrir að gera verðmöt sem voru síðan um 40 prósentum yfir útboðsgengi. Þrátt fyrir það var þátttaka fjárfesta í hlutafjárútboðinu undir væntingum.
Að auki fjöllum við um nýja könnun á meðal blaðamanna þar sem kemur fram að þrír af hverjum fjórum hafi orðið fyrir áreitni eða fjandsemi og fjórðungur hefur sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögð.
Í sportpakka dagsins verður svo farið yfir stóru stundina sem varð í gær á Laugardalsvelli þegar Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta leik.