Niðurstöðurnar voru kynntar á málþingi Blaðamannafélagsins sem fram fór í morgun. Þar kom meðal annars fram að sjö af hverjum tíu hafi tekið eftir mikilli aukningu í upplýsingaóreiðu í starfi sínu síðustu þrjú ár og meira en helmingur telur hana mikið vandamál fyrir íslenska fjölmiðla.
Þá sögðust 75% blaðamanna hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings af málum þar sem upplýsingaóreiða er algeng.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, segir þetta hlutfall allt of hátt og eitthvað sem samfélagið þurfi að skoða. Það sé alvarlegt hversu hátt hlutfall blaðamanna verði fyrir áreitni frá almenningi og stjórnmálamönnum.
„Og kannski það alvarlegasta við það er eins sést í þessari könnun að 28% segjast hafa sleppt því að fjalla um mál þar sem mikil upplýsingaóreiða er í gangi vegna þess að þeir óttast afleiðingarnar fyrir sig og hlutfallið er ennþá hærra hjá yngstu eða reynsluminnstu blaðamönnunum þar sem 40% hafa kosið að fjalla ekki um tiltekin mál og þetta er það sem kallast sjálfsritskoðun og er bara mjög alvarlegt í þessu samhengi öllu og eitthvað sem við þurfum að skoða alvarlega,“ sagði Sigríður Dögg.
Af þeim sem hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi nefna flestir móðganir og árásir á samfélagsmiðlum. Þá segjast 11% hafa orðið fyrir hótunum.
Sigríður segir það hafa færst í aukana að almenningur og stjórnmálamenn fari í manninn en ekki málefnið.
„Og þegar við erum að sjá í auknum mæli að stjórnmálamenn séu farnir að ráðast líka að nafngreindum blaðamönnum og gagnrýna, þá setur það tóninn fyrir restina af samfélaginu og gefur skotleyfi á blaðamenn og það verður til þess að það verði þessi sjálfsritskoðun sem að er svona ákveðin tegund af skerðingu á frelsi fjölmiðla og rétti almennings til upplýsinga. Þannig að þetta er mjög alvarlegt og miklu alvarlegra heldur en ég kannski held að margir geri sér grein fyrir.“
Könnunin sneri að áhrifum upplýsingaóreiðu og gervigreindar á starfsumhverfi blaðamanna og fjölmiðla á Íslandi. Hún var lögð fyrir félagsmenn og voru 311 í úrtakinu. Svarendur voru 171 sem gerir 55% svarhlutfall.