Viðskiptablaðið greindi fyrst frá sölunni en um er ræða ein stærstu fasteignaviðskipti ársins. Kaupsamningur var undirritaður 11. nóvember og var honum þinglýst 16. nóvember.
Athygli vekur að fjölmörg húsgögn fylgja með í kaupunum, þar á meðal öll eldhústæki, borðstofuborð og stólar, píanó, stofuborð úr gleri, ýmis málverk, líkamsræktartæki, spilakassi og ýmislegt annað.
Þá greiðir Ana fyrir eignina í þremur millifærslum, 300 milljóna millifærslu við undirritun kaupsamnings, 270 milljóna millifærslu við afhendingu eignar og fjörutíu milljóna króna millifærslu við útgáfu afsals.
Húsið er 550 fermetrar, var hannað af arkitektinum Hjörleifi Stefánssyni, reist árið 2008 og stendur á sjávarlóð innst í rólegri botnlangagötu með 1.258 fermetra eignarlóð sem liggur að sjó með skjólgóðu útisvæði og óhindruðu útsýni út á sjó.
Eignin hafði verið á sölu síðan vorið 2025, fasteignamat hennar er 289,5 milljónir og var ásett verð 700 milljónir króna. Hún seldist því um níutíu milljónum undir verði.
Húsið er á þremur hæðum með stóru aðalrými með eldhúsi, borðstofu, kaffistofu og stórri stofu á aðalhæðinni, hjónasvítu sem spannar alla efri hæðina og gufubað, vínherbergi og líkamsrækt á neðri hæðinni.
Við austurhlið hússins er pallur með heitum potti í skjóli og með útsýni til suðurs og útisturtu. Vestan megin við húsið er stór viðarpallur með grillaðstöðu, útiborði og útihúsgögnum.
Ofan á bílskúrnum er þakverönd sem býður upp á aukið útisvæði sem er aðgengileg út frá fataherbergi í hjónasvítu. Á baklóðinni er stór grasflötur, steypt eldstæði og viðarstígur sem gengur í átt að sjó.