Í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlum VAL á dögunum svaraði Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor í frumulíffræði við Háskóla Íslands, annarri spurningu sem margir hafa velt fyrir sér.
Hún sagði okkur að margar bakteríur séu gagnlegar. Ef þú tekur epli með þér í nesti fá til dæmis sumar bakteríurnar í ristlinum sinn skerf. Þær geta brotið niður pektín, trefjaefni í eplinu sem okkar eigin meltingarensím ráða illa við.
En Margrét benti líka á þá sturluðu staðreynd að bakteríurnar í líkamanum væru álíka margar og okkar eigin frumur. Maður gæti þá látið sér detta í hug að við værum til hálfs bakteríur. Það fer eftir því hvort maður telur frumurnar eða vegur þær.
Í Vísindum á Vísi með VAL (Vísindarannsókn Háskóla Íslands) er fjallað er um vísindin í daglegu lífi.
Vísindamenn hafa reiknað bæði fjölda og þyngd frumnanna. Þeir miðuðu við 70 kílóa karlmann og áætluðu að í líkama hans væru um 30 billjónir mannsfrumna (30.000.000.000.000) og 38 billjónir baktería (38.000.000.000.000). Hlutfallið er þó breytilegt frá manni til manns.
Í sama reiknidæmi vógu líkamsfrumurnar um 46 kíló. Bakteríurnar allar til samans? Um 200 grömm. Það er á við eitt vænt epli. Bakteríurnar eru því bara lítið brot af líkamsþyngdinni. En eru þær hluti af mannslíkamanum? Hvað ert þú og hvað ert ekki þú? Svarið er kannski ekki svo einfalt. Bakterían sem brýtur niður pektínið í eplinu þínu er lífvera út af fyrir sig. Samt á hún sinn þátt í því sem þú kallar þína eigin meltingu.
En meirihluti bakteríanna í talningunni stendur líka tæpt. Langflestar búa í ristlinum og töluverður fjöldi þeirra fer sína leið í hverri hægðaferð. Þegar svona mjótt er á mununum getur ein klósettferð því dugað til að líkamsfrumurnar komist í meirihluta.
Myndbandið er hluti af vísindamiðlun rannsóknarinnar VAL við Háskóla Íslands. Kynntu þér rannsóknina og taktu þátt á val.hi.is.
Heimildir:
Í Vísindum á Vísi með VAL (Vísindarannsókn Háskóla Íslands) er fjallað er um vísindin í daglegu lífi.