Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís og Heimkaupa, hefur stefnt fyrrverandi vinnuveitanda sínum, Samkaupum, fyrir dóm. Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun. Vísir.is greindi frá þessu og byggir á upplýsingum í dagskrá dómstólanna. Þar er málið flokkað sem vinnulaunamál. Í samtali við DV segir Gréta hins vegar að málið snúist ekki um vangoldin laun og hún eigi ekki inni laun hjá fyrirtækinu.
Prís-forstjórinn fyrrverandi stefnir Samkaupum – Málið snýst ekki um vangoldin laun