Fjölda skipa hefur verið sökkt á svæðinu á undanförnum vikum. Helsta siglingaleið skipa frá Úkraínu liggur gegnum efnahagslögsögu Búlgaríu og Rúmeníu. Skipin sem ráðist hefur verið á hafa þó ekki öll verið að koma frá Úkraínu.
Hinum megin í Svartahafi hafa Úkraínumenn gert árásir á mörg skip sem siglt er til og frá Rússlandi.
Á þessu ári er búið að gera árásir á fleiri en 300 skip á Svartahafi, samkvæmt sérfræðingum sem blaðamenn Wall Street Journal ræddu við. Að minnsta kosti þrjátíu hafa látið lífið og tuttugu er saknað.
Sjá einnig: Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi
Í síðustu viku urðu fjögur skip fyrir árásum nærri Sulina í Rúmeníu.
UPDATE: Suspected Russian Attacks on Cargo Ships in the Black Sea In the last 48hrs, a further 2 ships have been sunk in Russian attacks - the Liberia-flagged GAS HUSKY and the Somalia-flagged BETUL 8. A search and rescue operation is underway for the former. h/t @InsiderGeo
— DefenceGeek 🇬🇧 (@DefenceGeek) November 17, 2026
Skipið sem sökk í morgun kallast Gas Husky og var skráð í Líberíu. Það mun hafa borið um 3.400 tonn af jarðgasi þegar það sökk. Samkvæmt frétt Reuters er þetta átjánda skipið sem ráðist er á á þessu svæði á nokkrum vikum. Mörg þeirra hafa sokkið.
Í gær var skipinu Betul8, sem skráð var í Sómalíu og bar um þrjú þúsund tonn af hveiti, sökkt tiltölulega skammt frá staðnum þar sem Gas Husky sökk. Tólf úr áhöfn skipsins var bjargað og sögðu þeir að ráðist hafi verið á skipið með fjarstýrðum sjálfsprengidrónum.