Pedro Sánchez, forsætisráðherra og leiðtogi Sósíalistaflokksins, boðaði til skyndikosninga í síðasta mánuði. Það gerði hann í kjölfar þess að minnihlutastjórn hans kom ekki í gegn frumvarpi um umbætur í húsnæðismálum. Fjöldamótmæli hafa geisað á Spáni undanfarnar vikur vegna húsnæðismála.
Skoðanakannanir benda til þess að hægrimenn taki við völdum eftir kosningar. Lýðflokkurinn og Vox, flokkur fjarhægrimanna, mælast saman með tæplega helmingsfylgi og öruggan meirihluta þingmanna.
Sósíalistaflokkur Sánchez réttir úr kútnum í nýjustu könnun sem gerð var fyrir dagblaðið El País og útvarpsstöðina Cadena SER. Hann mælist nú rétt undir kjörfylgi úr síðustu kosningum árið 2023 með 30,3 prósent og 119 þingmenn.
Hrun annarra vinstriflokka þýðir þó að sósíalistar eru afar ólíklegir til þess að komast í ríkisstjórn. Breiðfylkingin, kosningabandalag vinstriflokka, mælist nú með 3,7 prósenta fylgi en forveri þess fékk rúm fimmtán prósent atkvæða í þingkosningunum 2023.
Færri vilja leiðtoga Lýðflokksins en flokkinn sjálfan
Flestum kjósendum hugnast Sánchez sem næsti forsætisráðherra, 32,1 prósent svarenda, örlítið hærra hlutfall en hyggst kjósa Sósíalistaflokkinn.
Mun færri vilja aftur á móti sjá Alberto Núñez Feijóo, leiðtoga Lýðflokksins, í forsætisráðherrastólnum en styðja flokkinn. Lýðflokkurinn mælist með 31,5 stuðning í könnuninni en rúmlega 21 prósent vill Feijóo sem forseta ríkisstjórnarinnar, eins og embættið er kallað á Spáni.
Nítján prósent svarenda í könnuninni vilja að Santiago Abascal, leiðtogi Vox, taki við stjórnartaumunum eftir kosningar.
Stýrt minnihlutastjórnum í átta ár
Sánchez hefur verið forsætisráðherra Spánar frá 2018. Það ár tókst sósíalistum að fá þingið til þess að lýsa yfir vantrausti á Mariano Rajoy, forsætisráðherra og leiðtoga Lýðflokksins, vegna umfangsmikils spillingarmáls. Það er í fyrsta og eina skipti sem spænska þingið hefur lýst yfir vantrausti á forsætisráðherra frá því að lýðræði var komið aftur á.
Síðan þá hefur Sósíalistaflokkurinn leitt minnihlutastjórnir með missamstæðum kosningabandalögum annarra vinstriflokka sem hafa þurft að reiða sig á stuðning ýmissa annarra flokka.
Fráfarandi stjórn þurfti þannig að treysta á að flokkur katalónskra aðskilnaðarsinna verði hana falli. Sá flokkur greiddi atkvæði gegn húsnæðisfrumvarpi sósíalista í síðasta mánuði sem varð kveikjan að skyndikosningunum.
Ásakanir um spillingu hafa plagað Sánchez og sósíalista á kjörtímabilinu. Eiginkona Sánchez er sökuð um að hafa notfært sér stöðu sína til þess að ná framgangi hjá háskóla í Madrid. Nokkrir nánustu ráðgjafar forsætisráðherrans hafa hrökklast úr embættum og starfi vegna spillingarásakana.