Umferð bíla um brúnna var stöðvuð eftir árásina en Úkraínumenn hafa um nokkurt skeið unnið að því að gera árásir á birgðaleiðir Rússa á Krímskaga og á hernumdum svæðum í suðurhluta Úkraínu. Lestarferðum var haldið áfram yfir brúnna í dag, samkvæmt ráðamönnum í Rússlandi.
Kerch-brúin er nítján kílómetra löng og tengir Krímskaga, sem Rússar hernámu og innlimuðu ólöglega í rússneska sambandsríkið árið 2014, við meginland Rússlands. Opnað var fyrir umferð yfir brúnna árið 2018 og er hún mikilvægur hlekkur í birgðakeðju Rússa.
Úkraínumenn hafa því í gegnum árin gert þó nokkrar árásir á brúnna. Meðal annars hafa þeir notast við sjávardróna og fljúgandi sjálfsprengidróna en í október 2022 var hluti brúnnar felldur í sjóinn með bílasprengju.
Rússneskur ríkisstjóri Krímskaga sagði í morgun, samkvæmt Kyiv Independent, að brúin yrði lokuð fram eftir degi. Ráðamenn í Rússlandi segja að skemmdirnar á brúnni séu tiltölulega litar og að lokunin sé búin.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í morgun út yfirlýsingu um að 1.336 úkraínskir drónar hefðu verið skotnir niður yfir sextán héruðum landsins. Sé það rétt, er um nýtt met að ræða og árásin sú umfangsmesta á Rússland hingað til.
Úkraínumenn gefa ekki upp fjölda dróna sem þeir nota til árása í Rússlandi en þann 29. október sögðust Rússar hafa skotið niður 1.254 úkraínska dróna.
Rússar segjast iðulega skjóta niður alla úkraínska dróna, eða því næst, og að tjónið sem þessir drónar eiga til að valda sé tilkomið vegna braks úr drónum sem skotnir hafa verið niður.
Myndir sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í morgun gefa til kynna að halli sé kominn á brúnna.
Russian authorities have acknowledged damage to the Crimean Bridge following a Ukrainian strike. Deputy Prime Minister Marat Khusnullin says engineers are assessing the damage and will determine how long repairs will take. Road traffic remains suspended, with reversible traffic being considered, while rail services reportedly operate normally. Crimean Wind reports that the road bridge's arch has visibly shifted following the attack. Russian authorities say no casualties were reported. #Ukraine
— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) November 16, 2026