Samkvæmt heimildum fréttastofu tilkynnti Ingvar Viðreisnarliðum um brotthvarf sitt upp úr klukkan ellefu í dag. Í framhaldinu mætti Ingvar á sinn fyrsta þingflokksfund hjá Sjálfstæðisflokknum.
Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttamaður okkar, er í þinghúsinu og bíður þess að ná tali af Ingvari í beinni útsendingu.
Fram kemur í yfirlýsingu Ingvars á Facebook að síðasta kjördæmavika og fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 hafi gert honum ljóst að sannfæring hans og stefna ríkisstjórnarinnar ættu ekki lengur samleið. Það sé verðugt markmið að ná hallalausum fjárlögum en leiðin að markmiðinu skipti ekki síður máli.
Ríkisstjórnin missir þingmann við þessi skipti. Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins fengu 36 þingmenn í kosningunum 2024 en síðan þá hefur fækkað í hópnum. Jón Gnarr gekk úr þingflokki Viðreisnar og Guðmundur Ingi Kristinsson úr þingflokki Flokks fólksins. Báðir styðja þó ríkisstjórnina sem þingmenn utan flokka.
Eftir brotthvarf Ingvars eru þingmennirnir 33 sem tilheyra þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. 32 þingmenn þarf fyrir minnsta minnihluta á þingi. Eftir tilfærslu Ingvars er Sjálfstæðisflokkurinn kominn með 15 þingmenn eða jafnmarga og Samfylkingin. Flokkur fólksins og Viðreisn eru með 9 þingmenn, Miðflokkurinn 8 og Framsóknarflokkurinn 5.
Neðst í fréttinni má lesa nýjustu tíðindi í sérstakri fréttavakt.
Að neðan má sjá færslu Ingvars í heild.
Frá því að ég hóf afskipti mín af stjórnmálum hef ég haft að leiðarljósi að hlutverk stjórnmálamanna sé að auka frelsi fólks, skapa skilyrði fyrir sterkt atvinnulíf og bæta þannig lífskjör í landinu. Vaxandi verðmætasköpun er forsenda þess að hægt sé að byggja upp öflugt velferðarkerfi.
Þetta var sú sýn sem ég talaði fyrir í kosningunum 2024 og sú stefna sem ég hef reynt að vinna eftir á þingi. Undanfarnar vikur og mánuði hef ég velt því fyrir mér hvort ég geti, innan núverandi stjórnarsamstarfs, staðið við það sem ég bauð mig fram til að gera. Síðasta kjördæmavika og fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 gerðu mér ljóst að sannfæring mín og stefna ríkisstjórnarinnar, sem Viðreisn er hluti af, eiga ekki lengur samleið.
Það er verðugt markmið að ná hallalausum fjárlögum og ég styð það. Leiðin að markmiðinu skiptir þó ekki síður máli. Skattahækkanir sem draga úr fjárfestingu og getu fyrirtækja til að vaxa vinna gegn langtímahagsmunum samfélagsins. Ég vil leggja meiri áherslu á að við vöxum út úr vandanum, samhliða aðhaldi hjá hinu opinbera og betri nýtingu skattfjár. Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að við getum staðið undir góðri heilbrigðisþjónustu, menntun og öðrum sameiginlegum verkefnum. Við getum aldrei skattlagt okkur til velsældar.
Ríkisstjórn sem ætlar að ná tökum á ríkisfjármálunum þarf að sýna árangur í aðhaldi og hagræðingu áður en hún gengur enn frekar á tekjur fólks og þrengir að rekstri fyrirtækja.
Miðað við forsendur fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2027 verða tekjur ríkissjóðs hærra hlutfall af landsframleiðslu en gert var ráð fyrir í fjárlögum þessa árs. Ríkið tekur þannig til sín stærri hluta af kökunni. Viðreisn hét því að hækka ekki skatta.
Ég hef heyrt frá fólki víða í atvinnulífinu sem ákvað að gefa Viðreisn tækifæri í síðustu kosningum. Margt af þessu fólki var orðið þreytt á fyrri ríkisstjórn og heyrði hjá Viðreisn ferska rödd sem talaði af virðingu um atvinnulífið og lagði áherslu á fyrirsjáanleika og stöðugleika. Nú upplifir þetta fólk að þau hafi verið svikið. Ég skil þá upplifun mjög vel. Þetta voru líka áherslurnar sem ég trúði á og talaði fyrir.
Ferðaþjónustan er skýrt dæmi um þetta. Fyrirtæki í greininni selja þjónustu langt fram í tímann og þurfa að geta treyst þeim forsendum sem þau verðleggja eftir. Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% strax um áramótin gengur gegn því. Þegar búið er að selja þjónustuna getur kostnaðurinn lent á fyrirtækjunum sjálfum. Reynslan af breytingum á skattaumhverfi skemmtiferðaskipa hefði átt að kenna okkur mikilvægi fyrirvara og samráðs. Nú á að endurtaka sömu mistök og ganga gegn loforðinu um að hækka ekki virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Baðlónin eru mikilvægir seglar, ekki síst í Norðausturkjördæmi, þar sem þau draga gesti að stöðum sem margir myndu annars ekki heimsækja.
Þetta er sérstaklega vondur tími til að veikja samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar. Í landamærakönnun Ferðamálastofu fyrir árið 2025 töldu ríflega 18% erlendra ferðamanna að Íslandsferðin hefði ekki verið peninganna virði. Á sama tíma erum við að tapa samkeppninni yfir vetrarmánuðina við Noreg og Finnland, sem keppa við okkur um vetrarferðamenn. Stjórnvöld ættu að hjálpa greininni að nýta tækifærin til vaxtar og heilsársstarfsemi um allt land. Hærri álögur með skömmum fyrirvara vinna gegn því.
Skortur á fyrirvara og vönduðum undirbúningi hefur líka einkennt aðrar skattabreytingar. Innleiðing kílómetragjaldsins var til að mynda of hröð og illa undirbúin. Fjármálaráðherra kynnti breytinguna sem tekjuhlutlausa. Þegar ég beitti mér fyrir frestun á gildistöku laganna var mér hins vegar sagt að frestunin myndi kosta ríkissjóð nokkur hundruð milljónir króna á mánuði. Það samræmist ekki því sem hafði áður verið kynnt um tekjuáhrif breytingarinnar.
Samhliða þessu voru vörugjöld á bifreiðar hækkuð verulega. Samanlögð vörugjöld og virðisaukaskattur á bensínjeppa í efsta vörugjaldsþrepi eru nú hærri en innflutningsverð bílsins sjálfs. Þetta leggst sérstaklega á landsbyggðina, þar sem hlutfall rafbíla er lægra.
Hækkun vörugjalda og veiðigjalda, ásamt upptöku almenns kílómetragjalds, var rökstudd með þörfinni á innviðauppbyggingu á landsbyggðinni. Ég tel ekki að staðið hafi verið við þau fyrirheit gagnvart Norðausturkjördæmi. Heildarframlög til samgöngumála í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 lækka frá fjárlögum þessa árs. Samt á nú að hækka kílómetragjaldið um tæp 16%. Hærri flutningskostnaður veikir samkeppnisstöðu fyrirtækja á landsbyggðinni og hækkar framfærslukostnað heimilanna.
Atvinnulífið í Norðausturkjördæmi leggur sannarlega sitt af mörkum. Sem dæmi kemur fram í nýlegri greiningu sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi að munurinn á áætluðum tekjum ríkissjóðs af landshlutanum og útgjöldum til hans hans sé um 800 þúsund krónur á íbúa árið 2026 og gæti numið um milljón árið 2027. Slíkt mat segir ekki alla söguna um þjónustu ríkisins, en sýnir vel framlag Austurlands. Innviðauppbygging þar er fjárfesting í verðmætasköpun sem nýtist landinu öllu.
Þrátt fyrir það er grunnþjónusta í samgöngum víða að veikjast. Vetrarferðum til Grímseyjar hefur verið fækkað úr fjórum í þrjár á viku. Til stendur að fækka flugferðum til Vopnafjarðar og Þórshafnar úr fimm í þrjár á viku. Ferðum Strætó milli Akureyrar og Reykjavíkur hefur líka fækkað. Á sama tíma hefur samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins bólgnað langt út fyrir upphaflegar kostnaðaráætlanir. Ég get ekki varið þá forgangsröðun að halda áfram á þeirri braut á meðan grunnþjónusta í samgöngum á landsbyggðinni er skert. Fólk um allt land á að geta treyst því að komast öruggt til vinnu, í skóla og til læknis.
Loftbrúarmálið bætist við þessa mynd. Ég hef verið opinn fyrir breytingum á kerfinu, en þær tillögur sem innviðaráðherra kynnti fyrir stuttu voru illa unnar. Breytingin var hvorki kynnt né rædd á þingflokksfundi, heldur tilkynnt okkur með skilaboðum kvöldið áður en ráðherra kynnti hana opinberlega. Þannig er ekki hægt að standa að ákvörðun sem skiptir fólk á landsbyggðinni svona miklu máli.
Við þurfum líka að standa við fyrirheit um nauðsynlegar framkvæmdir. Ég hef alltaf talað fyrir því að Fjarðarheiðargöng verði næstu jarðgöng landsins og það var umfjöllunarefni jómfrúarræðu minnar á Alþingi. Austfirðingar hafa sameinast um þá forgangsröðun á vettvangi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Göngin eru fullhönnuð og tilbúin til útboðs. Samt eru þau ekki á framkvæmdaáætlun í þeirri samgönguáætlun sem Alþingi hefur nú samþykkt. Sú niðurstaða er óásættanleg fyrir Austurland. Fólk á ekki að þurfa að bíða áfram eftir nauðsynlegum öryggisbótum þegar undirbúningnum er lokið.
Ég greiddi þessari samgönguáætlun atkvæði. Það voru mistök. Ég bið Austfirðinga afsökunar á því og tek ábyrgð á eigin atkvæði. Ég hefði átt að fylgja þeirri afstöðu sem ég hafði ítrekað lýst.
Nýlega komu fram tillögur úr dómsmálaráðuneytinu, sem myndu fækka þingmönnum Norðausturkjördæmis úr tíu í sjö. Að jafna vægi atkvæða er mikilvægt viðfangsefni, en lýðræði snýst líka um aðgengi fólks að kjörnum fulltrúum sínum. Í víðfeðmu landsbyggðarkjördæmi þarf að ferðast langar leiðir og verja meiri tíma til að hitta kjósendur en á höfuðborgarsvæðinu. Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna sinna jafnframt fjölmörgum erindum um þjónustu ríkisins sem í þéttbýli eiga sér fremur hliðstæðu í verkefnum sveitarfélaga.
Ráðuneytin og miðstöð opinberrar stefnumótunar eru í Reykjavík. Því er enn mikilvægara að rödd landsbyggðarinnar heyrist skýrt á Alþingi þegar frumvörp og stefna stjórnvalda eru tekin þar til skoðunar. Ef ræða á jöfnun atkvæðavægis af alvöru og með virðingu fyrir landsbyggðinni þurfa slíkum breytingum að fylgja aðgerðir sem styrkja stöðu hennar. Þar ætti meðal annars að lögfesta skyldu til að meta byggðaáhrif lagasetningar og stefnumótunar, sambærilega þeirri skyldu að meta áhrif frumvarpa á jafnrétti kynjanna. Samhliða ætti að færa starfsemi ráðuneyta og stofnana í auknum mæli út á land. Slíkar tillögur fylgdu ekki þeim hugmyndum sem nú hafa verið kynntar um fækkun þingmanna landsbyggðarinnar.
Ég mun ekki samþykkja að þingmönnum kjördæmisins verði fækkað um 30%. Breytingar á kosningakerfinu verða að taka mið af raunverulegu aðgengi og áhrifum fólks um allt land.
Þegar ágreiningurinn nær til grundvallaratriða þarf að horfast í augu við hann. Samstarf flokka í ríkisstjórn á að mínu mati að byggja á því sem þeir eiga sameiginlegt og sem meirihluti er fyrir á þingi. Mér hefur þótt þetta samstarf snúast um of um hrossakaup, þar sem flokkar samþykkja mál sem ganga gegn eigin sannfæringu til að fá sínu framgengt annars staðar. Áform um leigubremsu og vísitölutengingu bóta eru meðal þeirra mála sem ég á erfitt með að samræma þeirri stefnu sem ég bauð mig fram fyrir. Sama á við um smærri mál, svo sem opinber afskipti af bragðefnum í níkótínvörum.
Í grunninn er ég frjálslyndur, hægrisinnaður landsbyggðarþingmaður. Ég var búsettur í Svíþjóð þegar ég fór fyrst að pæla í pólitík og hreifst af áherslum Fredriks Reinfeldt, þáverandi forsætisráðherra. Sú sýn hefur fylgt mér síðan: Það á að borga sig að vinna, leggja sitt af mörkum og taka áhættu. Lægri skattar á vinnu og betri skilyrði til atvinnurekstrar geta aukið verðmætasköpun og styrkt grunninn undir sameiginlegri þjónustu. Öflugt samfélag á að grípa þau sem þurfa á aðstoð að halda og tryggja öllum jöfn tækifæri. Ég vil að fólk og fyrirtæki hafi svigrúm til að skapa verðmæti og að landsbyggðin búi við innviði sem gera henni kleift að nýta tækifærin og byggja upp samkeppnishæf samfélög.
Skoðun mín á þessum grundvallaratriðum hefur ekki breyst. Ég á hins vegar ekki lengur samleið með þeirri stefnu sem þingflokkur Viðreisnar og ríkisstjórnin fylgja.
Nú hef ég tekið þá ákvörðun á segja skilið við þingflokk Viðreisnar og hef tilkynnt forseta Alþingis, formanni flokksins og þingflokksformanni um þá ákvörðun mína. Ríkisstjórnin hefur ekki lengur minn stuðning og ég mun starfa í stjórnarandstöðu. Ég mun þó áfram styðja góð mál, hvort sem þau koma frá Viðreisn, öðrum flokkum ríkisstjórnarinnar eða stjórnarandstöðunni.
Þessi ákvörðun er mér erfið og er tekin eftir langa íhugun. Mér þykir vænt um samstarfsfólk mitt í þingflokki Viðreisnar og ég hef eignast marga góða vini í flokknum. Ég er þakklátur fyrir samstarfið og traustið sem mér hefur verið sýnt. En ég ber líka ábyrgð gagnvart kjósendum mínum og minni sannfæringu.
Ég hef átt góð og uppbyggileg samtöl við forystu Sjálfstæðisflokksins og lýst yfir vilja mínum til að ganga til liðs við þingflokk hans. Ég tel mig eiga þar samleið með fólki um þau grundvallaratriði sem ráða afstöðu minni í stjórnmálum: frelsi einstaklingsins, öflugt atvinnulíf og ábyrgð í ríkisfjármálum.
Samstarf mitt við þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefur verið gott á þessu kjörtímabili, ekki síst oddvita flokksins í mínu kjördæmi. Í umræðum um atvinnulíf og efnahagsmál, sem og ýmis önnur mál, hefur það heyrt til undantekninga að ég hafi verið ósammála því sem þingmenn flokksins hafa sagt í pontu eða lagt til. Það hefur styrkt sannfæringu mína um að við eigum samleið um þau verkefni sem eru brýnust fyrir Ísland.
Því geng ég til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann hefur átt ríkan þátt í breytingum sem hafa styrkt Ísland, svo sem aðildinni að NATO, EES-samningnum, þróun fiskveiðistjórnunarkerfisins og auknu frelsi í atvinnulífi og fjölmiðlum. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum innan flokksins og vinna að því að fólk og fyrirtæki um allt land fái betri tækifæri til að blómstra.
Að neðan má sjá nýjustu tíðindi í sérstakri fréttavakt.