Íslendingar eru hvattir til að taka þátt í undirskriftasöfnun þar sem skorað er á tæknirisann Apple að bjóða loksins upp á íslenskt notendaviðmót í iPhone-símum og Mac-tölvum.Átakið hefst í dag, á degi íslenskrar tungu, og standa Almannarómur og Íslandsstofa að því í samstarfi við stjórnvöld.Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Almannaróms, fjallar um málið í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann bendir á að Apple hafi áður verið í fararbroddi þegar kom að íslensku tölvuviðmóti en nú sé öldin önnur.
Íslendingar beina spjótum sínum að Apple – „Við eigum ekki að þurfa að setja á alarm“