Tónlistarmaðurinn Gímaldin heldur tónleika í Hannesarholti næstkomandi fimmtudagskvöld, þann 19. nóvember, kl. 20:00. Yfirskrift tónleikanna er Evrópa/Neirópa og er í efninu tekist á við útkomu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá ágústmánuði um að hefja aftur aðildarviðræður við ESB. Í verkunum er fólgin hugleiðing um innlegg Zbigniew Preisners um hlutverk þjóðar í Evrópu: A song for the Unification of Europe og Van Den Budenmayer Funeral Music.Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, verður kynnir og leggur út af efninu.
Gímaldin með tónleika í Hannesarholti