Fimm ríki kynna brottvísunarstöðina í Rúanda í Vín síðar í dag. Auk Danmerkur ætla Austurríki, Þýskaland, Holland og Grikkland að senda hælisleitendur til Afríkuríkisins. Evrópusambandið opnaði á möguleikann á að ríki sendu útlendinga til brottvísunarstöðva utan álfunnar í sumar.
Danska ríkisútvarpið segir að dönsk stjórnvöld stefni að því að senda um hundrað hælisleitendur sem þau hafa synjað um alþjóðlega vernd til Rúanda.
Þó að samkomulagið við stjórnvöld í Rúanda sé lýst sem pólitískum sigri fyrir Frederiksen og Jafnaðarmannaflokk hennar gengur það þó ekki eins langt og hún hefur stefnt að. Markmið Frederiksen er að hælisleitendur verði hýstir utan Danmerkur á meðan farið er yfir umsóknir þeirra.
Þá verður Dönum ekki að þeirri ósk sinni að senda útlendinga sem hafa framið glæpi í brottvísunarstöðina.
„Við byrjum á þeim sem við getum sent núna, hælisleitendum sem hefur verið synjað um ernd. Við erum með nokkuð marga þeirra í kerfinu okkar,“ segir Morten Bødskov, innflytjenda- og aðlögunarmálaráðherra úr Jafnaðarmannaflokknum.
Stjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi hætti við umdeild áform fyrri ríkisstjórnar Íhaldsflokksins um að senda hælisleitendur til Rúanda fyrir tveimur árum. Breskir dómstólar höfðu þá lagt bann við því að fólk yrði sent þangað.
Reuters-fréttastofan segir að áformin sem Danir og hin Evrópuríkin fjögur kynna í dag séu ólík þeim sem breski Íhaldsflokkurinn reyndi að hrinda í framkvæmd. Bretar ætluðu að vísa hælisleitendum til Rúanda á meðan umsóknir þeirra væru enn til umfjöllunar. Danir og fleiri ætla aðeins að senda þá umsækjendur sem hafa þegar fengið endanlega niðurstöðu í sínum málum til Afríku.