Ingvar tilkynnti að hann væri hættur í þingflokki Viðreisnar og genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í samfélagsmiðlafærslu í morgun. Vísaði hann til óánægju sinnar með fjárlagafrumvarpið, skatta og gjöld á ferðaþjónustu og bifreiðar auk frumvarps um jöfnun atkvæðavægis.
Guðrún segir í samtali við Vísi að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi boðið Ingvar hjartanlega velkominn á fundi sem stóð enn yfir nú rétt fyrir hádegi.
„Þegar ég tók við formennsku á landsfundinum á síðasta ári sagði ég skýrt að ég vildi stækka flokkinn og að ég vildi bjóða fólk velkomið heim. Ég meinti það sem ég sagði,“
Ingvar hafi látið að sér kveða á Alþingi. Ekki sé byrjað að skoða hvort honum verði falin trúnaðarstörf eins og sæti í nefndum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Guðrún segir að honum verði vitaskuld fundið verðugt hlutverk í þingflokknum.
„Margt af því sem hann hefur staðið fyrir fellur mjög vel að sjálfstæðisstefnunni. Við hlökkum bara til að vinna með honum núna að stefnu Sjálfstæðisflokksins. Mér finnst skipta máli að þarna er öflugur þingmaður að velja að ganga í Sjálfstæðisflokksins vegna þeirra gilda sem flokkurinn stendur fyrir.“
Orðrómar höfðu verið á kreiki um nokkurt skeið að Ingvar ætlaði að segja sig úr Viðreisn. Guðrún segir að það hljóti að hafa verið einhver aðdragandi að ákvörðun hans en að hlutirnir hafi svo gerst hratt síðustu klukkutímana.
Stjórnarmeirihlutinn veikist
Ingvar er þriðji þingmaðurinn sem segir skilið við stjórnarflokkana á kjörtímabilinu. Jón Gnarr, fyrrverandi flokksbróðir Ingvars, yfirgaf þingflokk Viðreisnar í síðasta mánuði og Guðmundur Ingi Stefánsson þingflokk Flokks fólksins fyrr á þessu ári.
Ólíkt þeim Jóni og Guðmundi Inga sem styðja áfram ríkisstjórnina er Ingvar genginn til liðs við stjórnarandstöðuna.
Eftir liðhlaup þingmannanna þriggja er ríkisstjórnin aðeins með tveggja manna meirihluta á þingi. Guðrún segir það hljóta að hafa áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar og getu hennar til þess að koma málum í gegn.
„Þegar þingmeirihluti veikist þarf ríkisstjórn að vanda vel hvaða mál og hvernig þau keyra mál í gegnum þingið.“
Í yfirlýsingu sinni sagðist Ingvar áfram ætla að styðja góð mál, hvort sem þau kæmu frá Viðreisn, hinum stjórnarflokkunum eða stjórnarandstöðunni. Guðrún segir sjálfstæðismenn gera það líka.
„Við styðjum góð mál frá ríkisstjórninni sem við teljum að bæti hag landsmanna. Við sitjum síðan hjá ef við erum á móti málum sem við teljum að ríkisstjórnin þurfi að vinna betur eða við erum einfaldlega hugmyndafræðilega á móti. Hver þingmaður hér á Alþingi Íslendinga greiðir atkvæði eftir sinni sannfæringu,“ segir hún.
Fréttin hefur verið uppfærð.