Manúela Ósk er framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland og tók sjálf þátt í keppninni fyrir þó nokkrum árum, þegar hún var átján ára, og sigraði. Þar klæddist hún rauðum Versace-galakjól sem hnefaleikakappinn Mike Tyson gaf Manuelu kjólinn en hann hitti hún á förnum vegi í New York fyrir keppnina árið 2002.
Dóttir Manúelu er sextán ára og kjóllinn hefur sannarlega elst vel og virðist nú orðinn að kynslóðarflík.