Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live. Þar segir að miðasala muni hefjast á föstudaginn klukkan 10. Hægt er að skrá sig í póstlistaforsölu Senu á hlekknum hér en forsalan fer fram á fimmtudag klukkan 10. Biðlað er til þeirra sem hafa áhuga á að skrá sig að gera það fyrir klukkan 22 miðvikudag.
Eins og áður segir mun rokksveitin hefja tónleikaferðalagið sitt hér á landi en því lýkur svo í Dublin í Írlandi þann 18. september.
Hljómsveitin er mörgum Íslendingum kunnug en þeir eiga smelli á borð við Everlong, The Pretender, My Hero og Learn to Fly og þá eru ónefnd fjölmörg lög með mörg hundruð milljón spilanir á Spotify.
Hljómsveitin hefur áður komið til landsins en Dave Grohl, aðalsprauta Foo Fighters, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Nirvana, sagði til að mynda árið 2005 að Ísland væri uppáhalds staður hljómsveitarinnar til að koma fram. Hljómsveitin kom fyrst til landsins árið 2003.
Margir muna eflaust eftir því þegar hljómsveitin kom fram á Secret Solstice árið 2017. Það má segja að Grohl og félagar séu fyrir löngu orðnir miklir Íslandsvinir. Á Solstice sagði Grohl Ísland vera land eins og öll önnur lönd ættu að vera. Þá upplýsti hann að árið 2003 hefði hann keypt sér hálsmen hér á landi. Hálsmenið hefði hann verið með allar götur síðan.
Sænska rokksveitin The Hive er einnig gífurlega vinsæl hljómsveit en þeir eiga til dæmis lagið Hate To Say I Told You So sem er með yfir 300 milljón spilanir á Spotify.
„The Hives er þekkt fyrir hrátt bílskúrsrokk og tryllta sviðsframkomu. Með hinn litríka Howlin' Pelle Almqvist í fararbroddi hefur sveitin um árabil heillað rokkunnendur um allan heim,“ segir í tilkynningu Senu Live.
The Hives hafa einnig troðið upp hér á landi en þeir komu til að mynda fram á hátíðinni Airwaves.