Nokkrum dögum eftir að Bandaríkjamenn hófu árásir á Íran, féllu bandarískir hermenn í drónaárás í Kúveit en einn hermaður sem lifði árásina af hefur höfðað mál gegn ráðneytinu.
Yfirmenn í her Bandaríkjanna segjast hafa reynt að vara stjórnendur heraflans í Mið-Austurlöndum við en að viðvarnir þeirra hafi verið hunsaðar. Síðan þá hafa margir þeirra verið reknir eða þvingaðir snemma á eftirlaun.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri grein Atlantic um undirbúninginn fyrir stríðið gegn Íran.
Í yfirlýsingu vegna greinar Atlantic segir Sean Parnell, talsmaður Hegseths, að það sé „viðurstyggilegt“ að miðillinn gefi í skyn að Bandaríkjamenn hafi ekki verið nægjanlega undirbúnir fyrir stríðið gegn Íran. Parnell segir að yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) hafi komið fyrir umfangsmestu loftvörnum heimsins á þessu svæði fyrir stríðið.
„Það skal enginn efast um að bandaríski herinn býr yfir bestu sóknar- og varnargetu allra ríkja heimsins. Við munum ávallt verja herstöðvar okkar og fólk.“
Hafa þróað lagaskipt varnarkerfi
Úkraínumenn hafa um árabil varist rússneskum sjálfsprengidrónum, sem Rússar fengu í massavís frá Írönum eftir að þeir hófu stríðið gegn Úkraínu. Rússar hafa þróað drónana áfram og deila yfirvöld ríkjanna upplýsingum um þá og framleiðslu þeirra sín á milli.
Drónar þessir eru gjarnan kallaðir Shahed-drónar eða Geran-drónar.
Fyrir stríðið gegn Íran vöruðu margir innan bandaríska hersins við því að Bandaríkjamenn þyrftu að hafa reynslu Úkraínumanna í huga. Sérstaklega það að Rússar hafi notað tugi eða hundruð dróna, í bland við skot- og stýriflaugar, til að gera mun erfiðara að skjóta drónana og eldflaugarnar niður.
Úkraínumenn hafa í gegnum árin þróað ýmsar leiðir til að granda þessum drónum. Þeir hafa þróað lagaskipt varnarkerfi þar sem notast er við margs konar skynjara til að kortleggja ferðir drónanna yfir Úkraínu og svo skjóta þá niður eða reyna að granda þeim með rafrænum truflunum.
Meðal annars notast Úkraínumenn við þyrlur, ódýr eldri flugskeyti sem búið er að breyta svo hægt sé að stýra þeim með leisergeislum, teymi hermanna á pallbílum með loftvarnarbyssur, önnur sérstök loftvarnarkerfi og jafnvel gamlar tveggja sæta flugvélar þar sem farþeginn er vopnaður haglabyssu og/eða riffli til að skjóta drónana niður.
Ein besta leiðin sem Úkraínumenn hafa þróað til að granda sjálfsprengidrónum eru hraðskreiðir fyrstu persónu drónar, sem stýrt er með sýndarveruleikagleraugum gegnum Starshield/Starlink-gervihnattatengingu, en þeir eru tiltölulega ódýrir og auðveldir í framleiðslu.
Nýlegar takmarkanir á notkun Starshield í Úkraínu eru sagðar hafa komið mjög niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum.
Sjá einnig: Aftur takmarkanir á Starshield í Úkraínu
Bandarískir hermenn í Þýskalandi fengu samkvæmt Atlantic að prófa þessa varnardróna haustið 2025 og báðu þeir Úkraínumenn um að skrifa skýrslu um drónana og reynslu þeirra af þeim.
Hefði átt að vera fyrsta spurningin
Skýrslunni var deilt innan bandaríska hersins og stjórnvalda í Bandaríkjunum um tveimur mánuðum áður en stríðið gegn Íran hófst, í lok febrúar á þessu ári. Chris Donahue, sem stýrði þá herafla Bandaríkjanna í Evrópu, hafði tekið svipaða dróna í notkun þar og hvatti aðra yfirmenn til hins sama. Hann lagði sérstaklega til við stjórnendur CENTCOM að taka svona dróna í notkun, þar sem ógnin frá írönskum sjálfsprengidrónum þótti mikil.
Menn úr stjórnendateymi Donahues sögðu Atlantic að ef farið hefði verið eftir tillögum þeirra hefði verið hægt að bjarga lífum bandarískra hermanna sem hafa fallið í átökunum og þá sérstaklega sex hermanna sem féllu þegar dróni lenti á vistarverum þeirra í Kúveit, skömmu eftir að stríðið gegn Íran hófst.
Einn heimildarmaður Atlantic segir að þetta hefði átt að vera skoðað ítarlega fyrir stríðið. Ein fyrsta spurningin innan Pentagon hefði átt að vera:
„Hvernig eigum við að verjast Shahed-drónum?“
Bandarísku hermennirnir í Evrópu gerðu aðra skýrslu um það hvernig þeir hefðu tekið varnardrónana í notkun og lögðu aftur til að aðrir gerðu það einnig. Skýrslan var þó ekki birt fyrr en þann 23. febrúar, fimm dögum áður en stríðið gegn Íran hófst.
Donahue var rekinn af Hegseth í sumar en í millitíðinni vann hann með sínu fólki í Þýskalandi að því að senda hundruð varnardróna til Mið-Austurlanda í þeirri von að þeir myndu verða notaðir til að verjast írönskum drónum.
Einn úr teyminu sagði Atlantic að Hegseth hefði verið mótfallinn þessum sendingum, þrátt fyrir það hvað varnardrónarnir voru ódýrir og skilvirkir.
„Af hroka, sögðu þeir: Af hverju þurfum við þetta?“
Christopher Cavoli, bandaríski herforinginn sem stýrði herafla NATO þar til hann lét af störfum síðasta sumar, ræddi einnig við Atlantic. Hann sagði frá því þegar hann áttaði sig á því að Bandaríkjamenn þyrftu að líta til Úkraínu og læra af átökunum þar.
Það var um sumarið 2023 þegar hann fylgdist með æfingu úkraínskra hermanna með hermönnum NATO.
„Oh, þeir eru að gera hluti sem við gerum ekki. Við þurfum að taka þessu alvarlega,“ sagðist Cavoli hafa hugsað.
Tveimur árum síðar, sumarið 2025, fór önnur æfing fram þar sem úkraínskir hermenn kepptu við hermenn NATO. Síðarnefndu hermennirnir hlutu afhroð á æfingunni þar sem Úkraínumenn beittu drónum af mikilli skilvirkni gegn bryn- og skriðdrekum NATO.
Einn skipuleggjanda æfingarinnar notaði myndefni af bandarískum hermanni veifa úkraínskum dróna, áður en dróninn var notaður til að líkja eftir árás á hermanninn, til að reyna að sýna fram á að Bandaríkjamenn hefðu mikið að læra af Úkraínumönnum.
Nokkrar svona æfingar hafa verið haldnar að undanförnu og hafa hermenn NATO ekki komið vel út úr þeim.
Einn úkraínskur yfirmaður sagði þá einnig hafa lært af æfingunum. Það er að yfirmenn NATO virtust ekki geta aðlagast breyttum raunveruleika.
Leystu upp nýja drónasveit
Í nóvember í fyrra stofnuðu Bandaríkjamenn sérstakt herfylki sem hafði það hlutverk að æfa og þróa drónahernað fyrir Bandaríkin. Hermennirnir í herfylkinu komu úr 173. fallhlífaherdeild Bandaríkjahers og var markmiðið að þróa herdeild sem væri hægt að senda hvert sem er í heiminum þar sem þörf væri á þeim.
Christopher LaNeve, nýr forseti herforingjaráðs Bandaríkjanna, gaf í sumar þá skipun að herdeildin yrði leyst upp og hermennirnir sneru sér aftur að því að vera hefðbundnir fallhlífahermenn.
Sjá einnig: Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum
Þetta var nokkrum mánuðum eftir að stríðið gegn Íran hófst og var ákvörðunin hjá LaNeve og Hegseth sögð óvinsæl meðal hernaðarsérfræðinga vestanhafs. Í samtali við fjölmiðla sögðu þeir meðal annars að drónahernaður yrði sífellt mikilvægari og að reynsla Bandaríkjamanna frá Íran sýndi fram á þörfina.
Í mál við ráðuneytið
Nokkrum klukkustundum eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu loftárásir í Íran svöruðu Íranir fyrir sig með sjálfsprengidrónum og skotflaugum. Í einni árás, á herstöð Bandaríkjamanna í Kúveit, féll dróni á híbýli hermanna og féllu sex þeirra. Þetta er enn mannskæðasta árásin gegn Bandaríkjamönnum í stríðinu.
23 bandarískir hermenn hafa fallið og hundruð hafa særst.
Einn hermaður sem lifði árásina af hefur höfðað mál gegn yfirmönnum bandaríska hersins og sakar þá um að hafa hunsað viðvaranir og verið óundirbúnir fyrir átökin. Sá heitir Stephen Ramsbottom og er majór í bandaríska hernum.
Ramsbottum segir meðal annars í málsókn sinni að yfirmenn hersins hafi hunsað viðvarnir vegna íranskra dróna
Hann ræddi þá ákvörðun sína að höfða mál við 60 mínútur fyrir þátt sem birtur var í gær. Þar var einnig rætt við fjölskyldur hermanna sem hafa fallið í átökunum. Langflestir þeirra benda á yfirmenn í varnarmálaráðuneytinu og segja þá bera ábyrgð á dauðsföllunum.
Beittu rándýrum flugskeytum gegn ódýrum drónum
Árásirnar beindust ekki eingöngu gegn bandarískum hermönnum og hernaðarinnviðum í Mið-Austurlöndum. Þær beindust einnig gegn bandamönnum Bandaríkjanna á svæðinu. Íranir skutu sjálfsprengidrónum og sprengiflaugum í massavís að öðrum ríkjum á svæðinu.
Bandaríkjamenn höfðu sent fjölda loftvarnarkerfa á svæðið og umrædd ríki reka sín eigin loftvarnarkerfi sem mörg hver eru bandarísk framleiðsla og notast við mjög dýr flugskeyti.
Rándýr flugskeyti voru notuð til að skjóta niður tiltölulega ódýra sjálfsprengidróna og eldflaugar.
Sjá einnig: Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás
Til dæmis má benda á það að PAC-3 flugskeyti, sem eru notuð í Patriot-kerfi, kosta um fjórar milljónir dala stykkið (fjórar milljónir dala eru 486 milljónir króna) í framleiðslu og geta farið vel yfir það, samkvæmt gögnum frá bandaríska hernum sem hafa litið dagsins ljós.
Framleiðsla þessara flugskeyta þykir þar að auki nokkuð hæg og hefur myndast töluverður skortur á þeim á heimsvísu, sem hefur komið verulega niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum.
Í grein Atlantic segir að Bandaríkjamenn hafi notað um þrjá fjórðu af birgðum sínum af flugskeytum í Patriot-kerfin.
Hroki og pólitík
Úkraínumenn buðu fram aðstoð sína og ráðamenn í Mið-Austurlöndum hringdu margir í Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, og báðu um aðstoð og að fá að kaupa varnardróna Úkraínumanna. Hermenn og sérfræðingar voru sendir frá Úkraínu til Mið-Austurlanda.
Sjá einnig: Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist fyrst opinn fyrir aðstoð Úkraínumanna en snerist fljótt hugur og sagði enga vita meira um dróna en Bandaríkjamenn. Þeir þyrftu ekki nokkra aðstoð.
Atlantic segir að Bandaríkjamenn hafi enn ekki komið upp neins konar vörnum gegn írönskum sjálfsprengidrónum, í takt við varnir Úkraínumanna. Þeir sem héldu áfram að berjast fyrir því að Bandaríkjamenn litu til Úkraínumanna hafa flestir verið reknir eða þvingaðir til að segja af sér og þar á meðal er Donahue og Dan Driscoll, hermálaráðherra.
Sjá einnig: Segir af sér eftir árekstra við Hegseth
Heimildarmenn Atlantic segja að tvær ástæður séu fyrir þessum mótþróa, hroki og pólitík. Þetta megi að miklu leyti rekja til deilna Trumps við Selenskí þegar sá síðarnefndi fór til Washington DC í febrúar 2025 og Trump skammaði hann fyrir frekju og vanþakklæti og sagði að Selenskí hefði engin spil á hendi.
Sá fundur er sagður hafa breytt samskiptum Bandaríkjamanna við Úkraínumenn. Hegseth hafi til að mynda ekki viljað heyra Úkraínu nefnda á nafn.