Ein stærsta rokkhljómsveit heims, Foo Fighters, hefur tónleikaferð sína TAKE COVER TOUR 2027 á Íslandi. Tónleikarnir fara fram í Nýju-Laugardalshöll þann 9. júní. The Hives hita upp og fleiri upphitunaratriði verða tilkynnt síðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.Ferðinni lýkur á Croke Park í Dublin 18. september. Meðal viðkomustaða er Wembley Stadium í London, þar sem sveitin leikur tvö kvöld, 9. og 11. september.Eingöngu er selt í stæði og eru tvö verðsvæði í boði:
Foo Fighters kemur til Íslands í sumar