Diljá hefur verið viðriðin stjórnmál um margra ára bil. Eftir að hafa verið á lista Besta flokksins í Reykjavík árið 2010 og hjá Bjartri framtíð fjórum árum síðar færði Diljá sig yfir í Viðreisn. Hún var í þriðja sæti á lista flokksins árið 2018 og varð fyrsti varaborgarfulltrúi hans eftir kosningar.
Diljá var í fjórða sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningum til Alþingis árið 2024 og er annar varaþingmaður flokksins. Samhliða pólitíkinni hefur Diljá unnið hjá Ennemm, Hörpu og síðast sem kynningarstjóri Listaháskólans. Diljá er með diplómu í sálgæslufræðum og er í guðfræðinámi.
Ólafur Heiðar er sérfræðingur í barnalækningum og smitsjúkdómalækningum barna og starfar hjá Domus barnalæknum í Urðarhvarfinu. Hann bjó áður í Bandaríkjunum þar sem hann starfaði við barnalækningar á Yale Children's Hospital og Connecticut Children's Medical Center.
Fimm ár skilja parið að, Diljá er fædd 1979 en Ólafur 1974. Diljá á eina dóttur og Ólafur á tvö börn úr fyrra sambandi.