Sema Erla Serdaroglu, formaður hjálparsamtakanna Solaris, segir að sér hafi verið meinað að kalla til mikilvæg vitni í dómsmáli vegna landssöfnunar samtakanna fyrir Palestínu. Hún telur sig sæta pólitískum ofsóknum og segir aðrar safnanir hafa verið tilkynntar of seint án þess að forsvarsfólk þeirra hafi verið ákært.
Sema Erla er ákærð fyrir að hafa ekki tilkynnt söfnunina til sýslumanns áður en hún hófst. Hún neitar sök. Aðalmeðferð í málinu er boðuð 24. nóvember.
Segir dómstóla hafa hafnað vitnaleiðslum
Í Facebook-færslu segir Sema Erla að ákæruvaldið hafi gert kröfu um að hún fengi ekki að leiða tiltekin vitni fyrir dóm og að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur hafi fallist á kröfuna.
Meðal vitnanna séu opinberir embættismenn sem hafi veitt samtökunum ráð um framkvæmd söfnunarinnar. Sema Erla telur ákvörðunina skerða rétt sinn til að halda uppi vörnum og segir að aðalmeðferðin styttist verulega vegna hennar.
Segir sex safnanir hafa verið tilkynntar of seint
Sema Erla segir verjanda sinn hafa aflað gagna um tilkynningar vegna opinberra fjársafna. Samkvæmt þeim hafi 13 tilkynningar borist sýslumanni frá apríl 2021 til október 2026. Sjö safnanir hafi verið tilkynntar áður en þær hófust og sex eftir að þær hófust.
Hún segir að aðeins þrír þeirra sem tilkynntu söfnun hafi skilað endurskoðuðu uppgjöri, þar á meðal Solaris. Hún segir að enginn annar sé nú rannsakaður eða hafi verið ákærður fyrir að tilkynna söfnun of seint eða sleppa því.
„Það ætti að vera flestum ljóst að með þessari ákæru er farið langt fram úr öllu sem hægt er að kalla meðalhóf og jafnræði,“ skrifar hún. Hún segir málið persónulegt og telur það lykta af pólitískum ofsóknum.
Söfnunin stóð yfir í tæpan mánuð
Lög um opinberar fjársafnanir kveða á um að tilkynna skuli söfnun til sýslumanns áður en hún hefst. Samkvæmt ákærunni stóð söfnun Solaris frá 7. febrúar til 4. mars 2024 en tilkynning var send sýslumanninum á Suðurlandi 3. september sama ár.
Sema Erla segir söfnunina hafa leitt til þess að hátt í 200 manns, að mestu konur og börn, kæmust af Gaza. Samkvæmt uppgjöri Solaris söfnuðust rúmar 93 milljónir króna í tengslum við verkefnið. Þar kemur fram að framlög hafi einnig borist eftir að söfnuninni lauk formlega.
Málið fellt niður tvisvar
Einar S. Hálfdánarson lögmaður lagði fram kæru vegna söfnunarinnar árið 2024. Lögreglan felldi rannsóknina tvisvar niður. Einar kærði ákvarðanirnar til ríkissaksóknara, sem beindi málinu aftur til rannsóknar.
Þegar ríkissaksóknari lagði fyrst fyrir lögreglu að taka málið upp aftur árið 2024 sagði vararíkissaksóknari að rökstuðning hefði skort fyrir niðurfellingunni. Hann tók fram að fyrirmælin segðu ekki til um hver niðurstaða rannsóknarinnar yrði.
Að sögn Semu Erlu hefst aðalmeðferðin klukkan níu þriðjudaginn 24. nóvember í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur við Lækjartorg. Hún býður fólki að fylgjast með þinghaldinu.
„Húsið mun þó ekki rýma öll þau sem hafa gerst sek um að hafa brotið lög um opinberar fjársafnanir, svo fyrstur kemur fyrstur fær.“