Ingvar tilkynnti um ákvörðun sína upp úr klukkan ellefu í dag með langri færslu á Facebook. Þar útskýrir hann hvers vegna hann telji sig ekki lengur eiga samleið með ríkisstjórnarflokkunum.
Ríkisstjórnin missir þingmann við þessi skipti, þann þriðja á innan við tveimur árum síðan ríkisstjórn var mynduð í desember fyrir tæpum tveimur árum. Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins fengu 36 þingmenn í kosningunum 2024 en síðan þá hefur fækkað í hópnum. Jón Gnarr gekk úr þingflokki Viðreisnar og Guðmundur Ingi Kristinsson úr þingflokki Flokks fólksins. Báðir styðja þó ríkisstjórnina sem þingmenn utan flokka.
Eftir brotthvarf Ingvars eru þingmennirnir 33 sem tilheyra þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. 32 þingmenn þarf fyrir minnsta minnihluta á þingi. Eftir tilfærslu Ingvars er Sjálfstæðisflokkurinn kominn með 15 þingmenn eða jafnmarga og Samfylkingin. Flokkur fólksins og Viðreisn eru með 9 þingmenn, Miðflokkurinn 8 og Framsóknarflokkurinn 5.