Inga Sæland menntamálaráðherra var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem til umræðu voru einkunnir grunnskólanema. Nemendur í tíunda bekk útskrifast í vor með tölustafaeinkunn en ekki bókstafaeinkunn eins og síðustu ár. Breytingin hefur sætt gagnrýni, meðal annars þar sem litlar breytingar eru gerðar á námsmatinu sjálfu.
Blanda inn kynlausu tungumáli
Í upphafi viðtals óskaði hún þáttarstjórnendum gleðilegs dags íslenskrar tungu sem er í dag, 16. nóvember.
„Nú er stóra stundin runnin upp,“ sagði Inga.
„Nú?“ spurði Lilja Katrín Gunnarsdóttir þáttastjórnandi.
„Nú, að tala bara íslensku,“ svaraði Inga.
„Eigum við ekki að gera það alla daga?“ spurði Lilja.
„Nei, nú er búið að vera að blanda inn einhverju kynlausu tungumáli og gera tvö kyn úr tungumálinu okkar. Nú er bara áherslan á að halda sig við okkar íslensku, þá sem við höfum talað alveg síðan við hættum að tala gamle norsk,“ sagði Inga.
Börnum mismunað
Því næst sneru þau sér að einkunnamálunum. Inga segir að með breytingunni sé verið að gera kerfið skýrara, gagnsærra og auðskiljanlegra.
„Þetta getur gengið það langt að einn skóli gaf 56 prósent nemenda sinna í 10. bekk síðastliðið vor A, sem þýðir tíu, á meðan enginn fékk einkunnina A í einum skóla fyrir norðaustan. Ég segi, hvað þýðir þetta? Eru svona vondir kennarar fyrir norðan eða eru börnin ekki eins gáfuð og þau í þessum tiltekna skóla þar sem 56 prósent fengu A? Ég segi nei. Það er verið að mismuna börnum og matið er mismunandi og svona hipsumhaps og þessir einstaklingar sem fá A ganga fyrir í sínu vali í framhaldsskóla,“ segir Inga.
Common sense
Henni þyki það ekki eðlilegt að 56 prósent nemenda í sama skólanum fái A. Hún ætli þó ekki að láta skoða hvernig það gat gerst.
„Hvernig getur nýtt kerfi tryggt að þetta gerist ekki aftur? Getur það ekki gerst að 56 prósent nemenda fái tíu?“ spurði Lilja.
„Nei, það liggur alveg fyrir að það myndi aldrei verða,“ segir Inga.
Af hverju ekki?
„Lilja, þetta er common sense, eins og maður segir á degi íslenskrar tungu. Það liggur náttúrulega bara algjörlega fyrir að það yrði aldrei þannig að 56 prósent nemenda fengju tíu,“ svaraði Inga.
Af hverju ekki?
„Segð þú mér. Hvernig væri það mögulegt? Hvernig gætir þú séð það að 56 prósent nemenda fengju einkunnina tíu?“ svaraði Inga.
Hvernig var þó mögulegt að 56 prósent nemenda fengu A?
„Segð þú mér,“ svaraði Inga aftur. „Hvernig í ósköpunum ætti ég að svara því þegar það er ekki nokkur maður sem skilur það. Hvorki ég eða nokkur annar,“ sagði Inga.