Á síðasta ári var slegið Íslandsmet þegar hald var lagt á tæplega 107 kíló af kókaíni. Það var meira en tvöföldun á milli ára þar sem kílóin voru um fjörutíu og fjögur árið áður. Stóra metið síðan í fyrra er hins vegar kolfallið í ár og magnið er nú þegar orðið tvöfalt meira en þá. Á fyrstu tíu mánuðum ársins var lagt hald á yfir 223 kíló af kókaíni.
Vignir Örn Oddgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, starfar hjá tæknideild lögreglunnar en þar fer fram greining á öllum fíkniefnum sem eru haldlögð hér á landi. Hann bendir á að stærsta kókaínmál Íslandssögunnar hafi komið upp á árinu þegar sending sem var um borð í skipi sem hafði verið siglt frá Brasilíu var stöðvuð í Straumsvík.
„Það hefur náttúrulega mikil áhrif á tölfræðina þegar stórar sendingar eru haldlagðar og ein sending getur tvöfaldað árið á undan og þess háttar, samanber þessi 106 kíló sem voru nýlega haldlögð í málinu sem er kallað Straumsvíkurmálið. Ein svona sending hefur náttúrulega mjög mikil áhrif á alla tölfræði en við erum samt að sjá þetta aukast á hverju ári. Það virðist bara vera nægileg eftirspurn. Ég held að það sé kannski helsta skýringin, eftirspurnin er mikil.“
Haldlagt magn nær allra svokallaðra örvandi efna hefur aukist gríðarlega en þar undir fellur til að mynda MDMA og amfetamín.
„Amfetamín hefur líka stóraukist í ár. Miðað við árið í fyrra þegar voru í kringum fimmtán kíló haldlögð, þá erum við komin yfir hundrað kíló í dag,“ segir Vignir.