Lýðræði, jafnrétti, friður, efnahagslegt öryggi og alþjóðlegt samstarf er meðal þess sem verður til umræðu á fundinum. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþingsins. Hér fyrir neðan verður hægt að fylgjast með fundi dagsins.
Í ljósi stöðu heimsmála verður sérstök áhersla lögð á frið, öryggi og stöðu lýðræðis. Leiðtogar komu saman á sérstökum fundi í Höfða undir yfirskriftinni „Sustainable Stability – Session on Women's Leadership & Peace“ í gær. Þar var til umræðu mikilvægi þátttöku kvenna í friðarumleitunum, alþjóðlegri öryggisstefnu og uppbyggingu varanlegs friðar.
Hér er hægt að kynna sér dagskrá þingsins en því líkur á morgun.
Meðal lykilþátttakenda á Heimsþingi kvenleiðtoga í ár eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, Julia Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), og Michelle Hinchey, þingkona í öldungadeild New York-ríkis.