Orkusalan vill reisa tvær 160 metra háar vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Fljótsdalshéraði. „Það er ljóst að þessi framkvæmd er umdeild hér á svæðinu,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri í Múlaþingi.
Umsagnarferli fyrir umhverfismatsskýrslu lauk í skipulagsgátt stjórnvalda á föstudag.
„Okkur finnst ekki hafa verið haft nægilegt samráð við íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Það eru þessir samfélagslegu þættir sem okkur finnst ekki hafa verið greindir nægilega vel í ljósi þess hvar staðsetningin á þessum vindmyllum yrði,“ segir Dagmar.
Meirihluti sveitarstjórnar skilaði umsögn um málið. Þar kemur fram að heimastjórn Fjarðarbyggðar leggist gegn vindmyllunum. Hún fer með hlutverk náttúruverndarnefndar.
Heimastjórnin ályktar að áformin hefðu mikil neikvæð sjónræn áhrif víða á Fljótsdalshéraði. Þá yrði umtalsverð hljóðmengun í grennd við vindmyllurnar.
Dagmar bendir á að einnig megi skoða betur hvort vegir séu til þess fallnir að flytja vindmyllur frá Reyðarfirði.
Mikilvægt svæði fyrir fuglalíf
Náttúruverndarstofnun segir í sinni umsögn að sum umhverfisáhrif séu óviss eða vanmetin og þau þurfi að greina betur. Þar er bent á að þetta sé mikilvægt svæði fyrir fuglalíf þar sem varpfuglar með mikið verndargildi, svo sem lómur, flórgoði og kjói, haldi til.
Áhrif á fuglana, verði vindmyllurnar reistar, séu óljós. Til dæmis hafi áhrif hljóðmengunar ekki verið metin út frá þeim.
VG og óháð leggjast gegn vindmyllunum í sinni umsögn í samráðsgátt. Listinn segir að samráð hafi verið ófullnægjandi og veruleg óvissa um áhrif framkvæmdarinnar á fuglalíf, landslag og náttúruupplifun.
Í framhaldinu tekur Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnun málið til umfjöllunar og skilar áliti um umhverfismatsskýrsluna.
„Við þurfum aðeins að bíða og sjá hvernig niðurstaðan verður þar. Næstu skref verða síðan tekin í framhaldinu,“ segir Dagmar Ýr.