Þýskur sérfræðingur í innflytjendamálum segir ástandið í einum umdeildasta skóla Þýskalands komið á það stig að best væri að loka honum alfarið og dreifa nemendunum á aðra skóla.
Um 90 prósent nemenda Karolina-Burger-Realschule í Ludwigshafen eru af erlendum uppruna. Skólinn hefur lengi glímt við alvarleg vandamál, meðal annars ofbeldi, slagsmál, skemmdarverk og brunavarnir eru ítrekaðar settar af stað.
Nú hefur um þriðjungur kennara skólans tilkynnt sig veikan og skólastjórinn var nýverið látinn fara.
Vill loka skólanum
Ahmad Mansour, sem sérhæfir sig í innflytjendamálum, segir ekki nóg að skipta aðeins um stjórnendur.
„Ég myndi loka skólanum alveg og dreifa nemendunum á aðra skóla,“ sagði Mansour í samtali við Bild.
„Þetta má ekki halda svona áfram. Skóli má ekki verða staður þar sem ofbeldi er orðið hluti af daglegu lífi.“
Mansour segir ýmsa þætti hafa stuðlað að ástandinu, þar á meðal ofbeldi á heimilum, áhrif samfélagsmiðla, kennara sem fái ekki nægan stuðning og stjórnvöld sem hafi brugðist of seint við.
Vandamálin hafa verið alvarleg um nokkurt skeið. Tilkynnt hefur verið um hnífaárásir og hótanir gegn kennurum, piparúðaárásir, skemmdarverk og margt fleira.
„Misheppnuð innflytjendastefna“
Susanne Schröter, félagsvísindamaður við háskólann í Frankfurt, segir ástandið í skólanum vera eins konar stækkunargler á misheppnaða innflytjendastefnu Þýskalands.
Hún segir Karolina-Burger-skólann langt frá því að vera einstakt tilfelli og að svipuð vandamál hafi ítrekað komið upp í skólum þar sem hlutfall nemenda af erlendum uppruna sé mjög hátt.
Heinz-Peter Meidinger, forseti þýska kennarasambandsins, tekur undir það og segir vandamálin sérstaklega áberandi í skólum þar sem inngilding hafi mistekist.
Hann segir jafnframt að þýskir foreldrar taki börn sín úr slíkum skólum þegar vandamálin aukast. Það leiði síðan til þess að hlutfall nemenda af erlendum uppruna hækki enn frekar.