Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins.
Þau ræða líka almennt um rekstur sveitarfélaga og atvinnuástandið.
Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú.
Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir og ofbeldi í garð lögreglumanna, nýja löggæsluáætlun og sameiningu embætta.