Guðmundur H. Guðjónsson er afar ósáttur við vinnubrögð lögreglunnar á Vesturlandi eftir að hann var sektaður um 20 þúsund krónur fyrir framúrakstur á Vesturlandsvegi í vor.Hann segir lögregluskýrslu um atvikið ranga og að myndbandsupptaka úr lögreglubifreið sýni að atburðarásin hafi verið önnur en lögreglumaður lýsti. Þrátt fyrir að hafa leitað til tveggja lögmanna ákvað Guðmundur að lokum að greiða sektina með óbragð í munni.
Guðmundur gafst upp á baráttunni við lögregluna: Borgaði sektina en með mikið óbragð í munni