Íris Erlingsdóttir skrifar:
Ef Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti er Sif Sigmarsdóttir eins og trans-aktívisti. Hvorugur hópurinn lætur staðreyndir flækjast fyrir sér.
Í grein á Vísi líkir Sif Elliða við offitu-aktívista sem láta hugmyndafræði ganga fyrir staðreyndum. Tilefnið er ummæli Elliða um óeirðirnar í Frakklandi og þátt innflytjenda og öfgafullra múslima í þeim.
Sif útskýrir hvað raunverulega er að gerast í Frakklandi. Sú saga er hjartnæm. Óeirðirnar „hófust meðal skólafólks sem mótmælti slæmum aðbúnaði og fjárskorti í menntakerfinu,“ skrifar hún. Ekki fer sögum af því að blessuð börnin, sem vilja bara betri blýanta, bækur og blöð, hafi rænt Bureau Vallée (franski Penninn/Eymundsson). Hins vegar hafa óeirðaseggirnir rænt, ruplað, brotið og brennt þúsundir verslana, lagt heilu hverfin í rúst og kveikt í ómetanlegum byggingum, m.a. ráðhúsinu í Limoges, glæsileg nýendurreisnarbygging frá árinu 1883.

Samkvæmt frönsku verslunarráðunum hafa 2.400 verslanir orðið fyrir skemmdum eða gjöreyðilagðar og tjónið nemur milljörðum evra (kannski verður franska menntakerfið fullkomið þegar öllu „skólafólki“ hefur tekist að stela Louis Vuitton-tösku).
Mótmælendur (hryðjuverkamenn) eru einnig óánægðir með „dýrtíð og niðurskurð stjórnvalda“ þrátt fyrir að Frakkland hefur ekki skorið niður félagsleg útgjöld á síðasta áratug; þess í stað hafa opinber útgjöld til velferðarmála síhækkað. Frakkland er eitt mesta velferðarútgjaldaríki heims – Frakkland og Finnland berjast um fyrsta sætið í Evrópu hvað varðar velferðarútgjöld. Frakkar verja nær þriðjungi allrar landsframleiðslu í félagsleg útgjöld – lífeyri, heilbrigðisþjónustu, atvinnuleysisbætur og rekstur menntakerfisins. Samkvæmt OECD námu opinber félagsleg útgjöld Frakka 30,6% af landsframleiðslu árið 2024, Finnlands 31,4%.
Ríkisstjórnir, eins og Margaret Thatcher sagði, „verða alltaf uppiskroppa með annarra manna peninga.“ En það er sama hve mikið ríkið skattleggur og eyðir, það er aldrei nóg til að seðja vinstrimenn, sem í raun vilja í raun glundroða meira en nokkuð annað.
Blessuð skólabörnin og vandræðagemlingarnir
„Verkalýðsfélög slógust í för með námsmönnum… Vandræðagemlingar og ofbeldisseggir sáu sér leik á borði,“ skrifar Sif. Franskir ráðamenn hafa sjálfir kennt róttækum vinstrihópum um ofbeldið. Helstu fylkingarnar – mun betur skipulagðar og fjármagnaðar en hópur skólabarna sem biður um betri bækur og blýanta – að baki óeirðunum, segja frönsk yfirvöld og greinendur (nei Macron, ekki gervigreindin) eru: „öfga-vinstri hópar, La France Insoumise (LFI), samtök hliðholl Palestínu… víðtækt net kommúnistahópa, verkalýðsfélaga og pólitískra aðgerðasinna.“
Sif vitnar í Elliða sem „kallaði óeirðirnar ‚meint‘ stúdentamótmæli og sagði að flestum væri ljóst að ofbeldisalda sem riði yfir í Frakklandi væri ‚keyrð áfram af einmitt þessum öfgakenndu trúarkredduöflum.‘“

Á ljósmyndum af óeirðaseggjum í Frakklandi má yfirleitt sjá palestínska fánann – sem af einhverjum ástæðum er áberandi hvar sem finna má hrakmenni og hringlandahátt. Hvað hefur Palestína – þar sem Íslam er trú 98% íbúanna – með meintan fjárskort í frönskum skólum að gera?
Þó embættismenn hafi ekki tengt óeirðirnar beint við innflytjendur sem skipulagðan hóp, er vitað að margir þeirra sem taka þátt í hryðjuverkum eru úr úthverfasamfélögum innflytjenda („banlieues“). Innflytjendastefna vinstrimanna í Frakklandi er einföld, það er ekkert til sem heitir „ólöglegur útlendingur.“ Allir velkomnir, hver sem er, hvaðan sem er og Frakkar hafa tekið opnum örmum á móti fólki frá íslömskum þjóðum. Árið 1950 voru um 230.000 múslimar í Frakklandi, árið 2000 um 3,7 milljónir. Í dag er áætlað að tala múslima í Frakklandi sé um sjö milljónir (10% af íbúafjölda landsins).
Ekki láta staðreyndir þvælast fyrir
Nokkrar staðreyndir til viðbótar: Síðan 2012 hafa 332 látið lífið í Frakklandi í íslömskum hryðjuverkaárásum – aðallega sprengjuárásir og fjöldaskotárásir; 86 létu lífið þegar íslamskur hryðjuverkamaður ók vörubíl inn í fólksfjölda í Nice. Á milli áranna 2001 og 2024 hafa 243.124 manns látið lífið á heimsvísu í 64.678 hryðjuverkaárásum Íslamista („Áætlað er að heildarfjöldi dauðsfalla á heimsvísu af völdum sérstaklega kristinnar hugmyndafræðilegrar hryðjuverkastarfsemi á þessu tímabili sé undir 100 manns.“ GoogleAI).
Sif hikar kannski við – eins og flestir Vesturlandabúar – að „gagnrýna fólk af ákveðinni trú,“ eins og Lionel Shriver skrifar í nýlegri grein í Spectator um Íslamvæðingu Texas. Þeir „skilja erlenda menningu að mestu leyti út frá mat – ekki limlestingum kynfæra kvenna, frændsemisgiftingum, nauðgunargengjum, kynferðislegu ofbeldi, kvenhatri, gyðingahatri, hómófóbíu og sérstakri tilhneigingu til að sprengja hluti í loft upp.“ Og Shriver bætir við, „það er ekkert Íslam án múslima.“
Óþarfi að láta staðreyndirnar þvælast fyrir sér.
Höfundur er fjölmiðlafræðingur.