Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði kínverska Kommúnistaflokknum til hamingju með 5. allsherjarfund 20. miðstjórnarinnar og hrósaði hugmyndum Xi Jinping um stjórnarhætti, samkvæmt endursögn kínverska utanríkisráðuneytisins af fundi hennar með Wang Yi utanríkisráðherra Kína í Beijing 29. október.
Ekkert af þessu kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins um sama fund. Þar er áherslan á viðskipti, jarðhita og alþjóðamál, sérstaklega innrásarstríð Rússa í Úkraínu.
Í enskri endursögn kínverska utanríkisráðuneytisins er Þorgerði Katrínu eignað það mat að hugmyndirnar í ritum Xi um stjórnarhætti séu „afar hvetjandi“, sérstaklega hugmyndafræðin um stjórnarhætti með fólkið í öndvegi. Ráðuneytið segir hana jafnframt hafa sagt að árangur Kína hefði mikla þýðingu fyrir heiminn.
Þetta eru þýðingar Nútímans á enskri endursögn kínverska ráðuneytisins, ekki orðréttar tilvitnanir í Þorgerði Katrínu.
Samkvæmt sömu endursögn sagði ráðherrann að Ísland „skilji og virði“ afstöðu Kína um að standa vörð um fullveldi og landhelgi ríkisins og myndi áfram fylgja „eins Kína“-stefnunni. Þar segir einnig að hún hafi þakkað Kína stuðning við mikilvæga íslenska hagsmuni, meðal annars í sjávarútvegsmálum.
Úkraína í íslensku tilkynningunni
Í tilkynningu Stjórnarráðsins er hvorki minnst á Xi Jinping, Kommúnistaflokkinn, allsherjarfundinn né afstöðu Kína um fullveldi og landhelgi.
Þar segir að tvíhliða samskipti hafi verið efst á baugi, meðal annars viðskipti og samstarf um jarðhita og grænar orkulausnir. Í umfjöllun um alþjóðamál er lögð áhersla á virðingu fyrir alþjóðalögum.
„Ég tók til að mynda sérstaklega upp árásarstríð Rússa í Úkraínu og biðlaði til Kínverja að beita áhrifum sínum á rússneska ráðamenn eins og hægt er,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í íslensku tilkynningunni.
Kínverska endursögnin nefnir Úkraínu hins vegar ekki. Um þann hluta fundarins segir aðeins að ráðherrarnir hafi skipst á skoðunum um alþjóðleg og svæðisbundin málefni sem vörðuðu báða aðila.
Samkvæmt kínverska ráðuneytinu kynnti Wang Yi íslensku sendinefndinni einnig allsherjarfund Kommúnistaflokksins og ræddi nauðsyn strangs aga innan flokksins. Hann þakkaði Íslandi jafnframt fyrir að fylgja „eins Kína“-stefnunni.