Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata og Þórarinn Hjartarson stjórnandi hlaðvarpsins Einnar Pælingar hafa deilt töluvert í dag á Facebook um mörk tjáningarfrelsisins, í tengslum við heimsókn hins íhaldssama og umdeilda Muhammad Taqi Usmani, frá Pakistan, hingað til lands. Sakar Björn Þórarinn um að halda því fram að það falli undir tjáningarfrelsið að hvetja til morða á ákveðnum hópum. Þórarinn segir Björn hins vegar rangtúlka orð sín.
Í hár saman um mörk tjáningarfrelsis predikarans umdeilda - „Rétturinn til þess að hvetja til þess að myrða aðra“