Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra birtir mynd af sér með Loga Einarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Daða Má Kristóferssyni og Ragnari Þór Ingólfssyni á samfélagsmiðlum sínum og vísar til þeirra sem „SpiceGuys“.
Hún segir uppátækið vera svar við atriði Valkyrjanna svokölluðu á árshátíð Stjórnarráðsins í fyrra þar sem ráðherrarnir Kristrún, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku lögin The Best með Tinu Turner og You Don't Own Me, sem Lesley Gore gerði frægt, með eftirminnilegum hætti.
Árshátíð Stjórnarráðsins fer fram í veislusalnum Vör við Skarfabakka þar sem gestir njóta sjávarútsýnis og sá fjármála- og efnahagsráðuneytið um skipulagningu veislunnar að þessu sinni.