Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin. Í færslunni vottaði Macron Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Hann hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og segist að öðru leyti ekki munu tjá sig um málið.
„Vegna umfjöllunar um athugasemd sem ég skrifaði á samfélagsmiðlinn X í gær vil ég biðjast afsökunar á orðalagi mínu, sér í lagi vísun til kjarnorkuvopna. Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð og hef ég nú eytt færslunni,“ segir Heimir Már í yfirlýsingu.
„Ég ítreka að hér var um persónulega færslu af minni hálfu að ræða sem tengist á engan hátt störfum mínum fyrir þingflokk Flokks fólksins og er ekki í neinu samræmi við stefnu eða gildi flokksins. Ég harma að þessi færsla mín hafi verið bendluð við flokkinn og bið félaga mína í Flokki fólksins innilega afsökunar á því.“