Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir reiðir út í ákæruvaldið og dómstóla og upplifa að þeir fái enga réttarvernd í sínu starfi. Margir eru komnir með öryggismyndavélar fyrir utan heimili sín.
Þetta sagði Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, í Síðdegisútvarpinu.
Ríflega helmingur lögreglufólks hefur orðið fyrir ofbeldi eða hótunum í sínu starfi á síðustu fimm árum. Fjölnir segir þetta vera viðvarandi vandamál.
„Við erum mjög víða með menn sem veifa bara plöggum framan í okkur eftir að hafa verið kærðir fyrir að ráðast á lögreglumenn vegna þess að þetta hafði engar afleiðingar, þetta var bara fellt niður.“
Brot gegn lögreglunni allri
Þrír menn voru í vikunni dæmdir í sex til átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í Teslu sem rannsóknarlögreglukona hafði til umráða. Dómurinn taldi mönnunum öllum hafa verið kunnugt um að um hefnd væri að ræða.
Í ljósi þess að refsingarnar eru skilorðsbundnar afplána mennirnir ekki fangelsisdóminn nema þeir brjóti aftur af sér.
„Við lítum þannig á að það sé verið að ráðast á ríkið og valdstjórnina með þessu. Að þetta sé ekki brot bara gegn einstaklingi heldur lögreglunni allri.“
Fjölnir segir landssambandið ósátt við að ekki hafi verið ákært fyrir brot gegn valdstjórninni og að sakborningarnir hafi komist upp með að halda því fram að þeir hefðu ekki vitað að þetta væri bíll rannsóknarlögreglukonu. Lögreglukonan lét vita að henni hefði verið hótað og í kjölfarið hefðu mennirnir kveikt í bílnum hennar.
Þá þykir Fjölni athugavert að ekki hafi verið rannsakað hver höfuðpaurinn væri sem hefði skipað mönnunum að fremja verknaðinn.
„Okkur finnst við ekki fá neina réttarvernd, það sé enginn fælingarmáttur í dómstólum.“
Sáust sniglast í kringum bíl í bílageymslu
Fjölnir segir hótanir gegn lögreglumönnum oft beinast gegn fjölskyldum þeirra.
Nú séu margir komnir með öryggismyndavélar fyrir utan heimili sín.
„Við vitum hvar þú átt heima — og þarna sýndu þeir fram á það þeir vissu svo sannarlega hvar þessi lögreglumaður átti heima.“
Þá sé ekki langt síðan menn sáust sniglast í kringum bíl lögreglumanns sem var í bílageymslu heima hjá honum.
„Það er bara ógnandi að hafa einhvern fyrir utan heima hjá sér,“ segir Fjölnir.
„Það þarf ekki endilega að gera eitthvað, þú sérð bara þekktan brotamann fyrir utan heima hjá þér, það er ógnun í því.“
Hann kallar eftir því að þessi mál séu tekin fastari tökum.