Engin Íslendingasaga er til í frumriti og handritin okkar eru afrit af afritum. Litlu mátti muna að 400 íslensk handrit yrði brunanum mikla í Kaupmannahöfn að bráð en þeim var bjargað á síðustu stundu. Samt er það svo að um 80-90% af gömlu handritunum okkar séu glötuð. Halldór Guðmundsson, rithöfundur, gaf á dögunum út Líf í bókum, bókmenntasögu Íslands í einu bindi. Halldór er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Halldór Guðmundsson: Ekki ein einasta Íslendingasaga til í frumriti