Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sagði það koma niður á fyrirhuguðum útflutningi landsins á dísilolíu. Yfirvöld í Úkraínu hafa ekkert tjáð sig um málið.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur um nokkra hríð þrýst á Úkraínu að hætta þessum árásum, sem hann kennir um hækkun á dísilverði. Greinendur hafa frekar tengt verðhækkunina við stríðið í Mið-Austurlöndum eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran í febrúar.