Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Dofra Ólafssyni,sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. Samtökin Villikettir greindu frá því að kötturinn Gletta hafi stigið í minkagildru í Gufunesi en nafngreindu ekki Sorpu. Formaður Villikatta segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins.
Gunnar hjá Sorpu segir að starfsmenn hafi komið kettinum Glettu til dýralæknis um leið og hún fannst. Þá muni fyrirtækið greiða allan kostnað við aðhlynningu hennar.
Sorpa sé í samstarfi við Villiketti og leigi af þeim felligildrur til að fanga dýr sem villist inn á athafnasvæði Sorpu í Gufunesi. „Til að styðja betur við starfsemi samtakanna mun SORPA greiða aukalega eins árs leigu, 300.000 krónur, til samtakanna,“ segir Gunnar.
Biðst afsökunar
„Starfsfólk SORPU í Gufunesi og stjórnendur eru slegin yfir því sem gerðist, sérstaklega í ljósi þess að fullyrt var að þær gildrur sem notaðar væru við meindýravarnir hjá SORPU væri þeirrar gerðar að atvik sem þetta ætti ekki að geta gerst. Fyrir hönd SORPU biðst ég afsökunar á að ekki hafi verið gengið nægilega vel úr skugga um þetta,“ bætir Gunnar við.
Til standi að fá annan meindýraeyði sem geti sinnt vörnum í móttökumiðstöðinni í Gufunesi í samræmi við stefnu Sorpu um mannúðlega meðferð á dýrum.
„Þá verður leiða einnig leitað til að koma betur í veg fyrir að dýr, bæði villt dýr og gæludýr sem búa í nágrenni móttökustöðvarinnar, geti komist inn í hana.“
Mögulega verið föst í tvo daga
Ásdís Erla Valdórsdóttir hjá Villiköttum sagði í samtali við Vísi í gær að tilkynning hefði borist um kött á dýraspítalanum Animalíu. Kötturinn hefði verið illa á sig kominn eftir að hafa fest fótinn í minkagildru.
„Hún er búin að vera föst í gildrunni í kannski tvo daga þegar hún finnst,“ sagði hún um Glettu. Hún sé villiköttur en búi þó hjá góðu fólki í Gufunesi.
„Hún var orðin það köld að það mældist ekki líkamshiti og hún búin að klóra af sér allar klærnar við að reyna að komast úr gildrunni.“
Ásdís sagði ekki víst að Gletta hefði brotnað á beini þegar hún lenti í gildrunni, heldur hefði hún hlotið talsverðan taugaskaða við það að reyna að koma sér úr gildrunni auk þess sem hún hefði losað beinið úr lið í átökunum.
Fyrir vikið hafi þurft að taka af henni einn fótinn en hún Gletta gekkst undir aðgerð í gær. Nú er hún í sjúkrafóstri á vegum Villikatta og mun þurfa að vera í búri núna næstu vikur á meðan hún er að jafna sig, að sögn Ásdísar.