Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fjarskiptamál ráðuneytisins. Hún ber við þjóðaröryggi og þjóðréttarlegum skuldbindingum.
Njáll Trausti lagði fyrirspurn fyrir alla ráðherra ríkisstjórnarinnar og spurði hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi ráðuneytin og stofnanir þeirra nýttu. Hann óskaði einnig eftir sundurliðun á framleiðendum og stofnunum.
Þjóðréttarlegar skuldbindingar á sviði öryggis- og varnarmála
Þorgerður svarar því til að utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur þess hagnýti ýmis farsíma- og gagnaflutningskerfi. Þar sem hluti starfseminnar fari fram í erlendum ríkjum þurfi að huga vel að allri öryggisumgjörð. Auk þess sé ráðuneytið bundið ríkri trúnaðarskyldu um eðli og gerð fjarskiptakerfa vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga á sviði öryggis- og varnarmála.
„Sökum þjóðaröryggis, trúnaðar- og netöryggissjónarmiða er ekki hægt að sundurliða sérstaklega hvaða framleiðendur er um að ræða.“
Gæti nýst til netárása
Ráðherrann segir að upplýsingar um hvaða upplýsinga- og fjarskiptakerfi ráðuneyti og stofnanir noti í daglegum rekstri séu viðkvæmar út frá netöryggissjónarmiðum, jafnvel þó að slík upplýsingagjöf geti virst hættulaus ein og sér.
„Slíkar upplýsingar gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi, sem er jafnan fyrsta skref skipulagðra netárása.“
Þorgerður Katrín segir að þegar vitað sé hvaða kerfi eða útgáfur séu í notkun megi tengja þau beint við þekkta veikleika og bregðast hratt við nýjum veikleikum, jafnvel áður en tekist hefur að verja og uppfæra kerfin.
„Slík vitneskja auðveldar einnig mjög hnitmiðaðar vefveiðar, þar sem árásaraðili getur líkt trúverðuglega eftir kerfum og birgjum sem starfsfólk þekkir. Því er mælt með að slíkar upplýsingar séu einungis veittar þeim sem þurfa á þeim að halda vegna starfa sinna.“