Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmikil fjársvik af Landsbankanum og peningaþvætti í tengslum við þau.
Aldrei hafa fleiri verið ákærðir í einu og sama málinu hérlendis en þingfesting í ákærunnar fer fram á mánudag í Héraðsdómi Reykjavíkur og þingfestingunni verður streymt í annan sal í dómhúsinu við Lækjargötu.
Erfitt að þræta fyrir peningaþvætti af gáleysi
Langstærsti hluti ákærunnar, sem telur einar 149 blaðsíður, varðar peningaþvætti en auk aðalmannanna tveggja sæta 68 ákæru fyrir peningaþvætti, langflestir með því að taka við fjármunum með millifærslu og umbreyta í reiðufé eða flytja áfram með millifærslum og afla sér ólögmæts ávinnings af brotum aðalmannanna.
Samkvæmt almennum hegningarlögum skal hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti á hegningarlögum eða af refsiverðu broti á öðrum lögum, eða meðal annars umbreytir slíkum ávinningi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhendingu hans, leynir honum eða upplýsingum um uppruna hans, eðli, staðsetningu eða ráðstöfun ávinnings sæta fangelsi allt að 6 árum.
Þá varðar slíkt brot sem framið er af gáleysi sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum.
Þannig getur maður framið peningaþvætti fyrir gáleysi með því að taka á móti peningum án þess að vita að peningarnir voru illa fengnir, að því gefnu að hann hefði átt að vita það. Mikill meiri hluti ákærðra í málinu er ákærður fyrir peningaþvætti og peningaþvætti af gáleysi til vara.
Betur heima setið en af stað farið?
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður veltir því upp í samtali við Vísi hvort það þjóni tilgangi að halda uppi vörnum hvað peningaþvætti af gáleysi varðar.
Framkvæmi maður ískalt hagsmunamat sjáist að ef málið fer í gegnum allt ferlið og leiðir svo til sakfellingar, þá sitji sakborningur uppi með sakfellingu og háan málskostnað, þegar það stefndi í það frá upphafi að hann yrði sakfelldur.
Þá komi upp sú spurning hvort ekki væri betra að losna við kostnaðinn með því að einfaldlega sleppa því að mæta í þingfestingu, hafi útivistarfyrirkall verið gefið út, sem sé líklega staðan hjá flestum. Hafi útivistarfyrirkall ekki verið gefið út gæti besta leiðin verið að mæta við þingfestingu og játa peningaþvætti af gáleysi og freista þess að ákæruvaldið sætti sig við þær málalyktir. Þá fengi viðkomandi líklegast vægan dóm og lágan reikning fyrir málsvarnarlaunum verjanda.
Annar reyndur lögmaður sem Vísir ræddi málið við á fyrri stigum sagðist myndu ráðleggja sakborningi í málinu að játa strax, ef hann leitaði til hans.
Þóknunin getur hæglega numið fleiri milljónum
Þrátt fyrir að þáttur langflestra sakborninga í málinu sé mjög lítill getur málskostnaður af vörn hvers og eins þeirra hæglega numið fleiri millljónum króna. Þannig þyrfti verjandi til að mynda að sitja allan tímann í sex klukkustunda þingfestingu málsins á mánudag og alla aðalmeðferðina, sem mun vafalaust taka marga daga.
Þá er ákæran í málinu heilar 149 blaðsíður og því gæti verjandi rukkað fleiri klukkustundir vegna undirbúnings málsins. Ekki er óvarlegt að áætla að dæmd málsvarnarþóknun verjanda í svo umfangsmiklu máli gæti numið minnst fimm milljónum króna. Taki allir sakborningar til varna gætu heildarmálsvarnarlaun því hæglega numið 350 milljónum króna.
Málsvarnarþóknun verjanda í sakamáli er greidd af ríkinu, sem svo krefur ákærða um greiðslu hennar, hafi hann verið sakfelldur. Sé viðkomandi ekki borgunarmaður fyrir þóknuninni lendir hún því á ríkinu. Því gæti kostnaður ríkisins vegna málsvarnarlauna orðið ærinn. Þá er ótalinn annar sakarkostnaður og kostnaður við rekstur dómsmálsins en ekki er ósennilegt að leigja þurfi húsnæði undir aðalmeðferð þess.