Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á orðalagi athugasemdar þar sem hann hvatti Emmanuel Macron Frakklandsforseta til að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin. Hann hefur jafnframt lokað aðgangi sínum á X og eru færslur hans ekki lengur sýnilegar.
„Vegna umfjöllunar um athugasemd sem ég skrifaði á samfélagsmiðlinn X í gær vil ég biðjast afsökunar á orðalagi mínu, sér í lagi vísun til kjarnorkuvopna. Þau orð eiga sér engar málsbætur og hefðu betur verið ósögð og hef ég nú eytt færslunni,“ sagði Heimir Már í yfirlýsingu sem Vísir birti.
„Ég ítreka að hér var um persónulega færslu af minni hálfu að ræða sem tengist á engan hátt störfum mínum fyrir þingflokk Flokks fólksins og er ekki í neinu samræmi við stefnu eða gildi flokksins. Ég harma að þessi færsla mín hafi verið bendluð við flokkinn og bið félaga mína í Flokki fólksins innilega afsökunar á því.“
Samkvæmt Vísi segist Heimir að öðru leyti ekki ætla að tjá sig um málið.
Prófíllinn @HeimirMar sást enn á X síðdegis föstudaginn 30. október en aðgangurinn er nú lokaður og færslur hans eru ekki lengur sýnilegar. Heimir segist hafa eytt athugasemdinni en í yfirlýsingunni minnist hann ekki á aðganginn sjálfan.
Heimir skrifaði athugasemdina klukkan 20:14 kvöldið áður undir færslu Macrons, sem vottaði Selenskí og Úkraínumönnum samúð eftir að rússneskur dróni lenti á járnbrautarstöðinni í Dnipro.
Þar sagði orðrétt, með stafsetningarvillum frumtextans:
„Dear Macron, stop this speaches and send troops in to fight for Ukraine and Europe and have the nuces ready to skoot at once.“
Á íslensku: „Kæri Macron, hættu þessum ræðuhöldum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu og hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin til að skjóta þegar í stað.“
Þórður og Snorri bregðast við
Þórður Pálsson skrifaði á X og vísaði jafnframt í eigin pistil um utanríkisráðuneytið:
„Ótrúlega er Heimir Már „hugrakkur“ að hvetja Frakklandsforseta til að fórna æsku þjóðar sinnar á vígvellinum og jafnvel hefja kjarnorkustríð í Evrópu. Ég er mest hissa á að hann skuli ekki genginn í sjálfboðaliðasveitir Úkraínu sjálfur.“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, birti skjáskot af frétt Vísis og skrifaði: „Jú ágætt framlag frá ríkisstjórninni í dag til heimsmálanna, takk fyrir þetta!“
Heimir tók við starfi hjá þingflokki Flokks fólksins í febrúar 2025 eftir áralangt starf sem fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni. Flokkur fólksins á aðild að ríkisstjórninni en Heimir er starfsmaður þingflokksins.