Síðasta gosi í Sundhnúksgígaröð lauk fyrir um fjórtán mánuðum og lengri tími hefur ekki liðið á milli eldgosa frá því að gostímabilið hófst. Eftir gosið hægði aðeins á landrisi við Svartsengi en síðasta hálfa árið eða svo hefur það haldist stöðugt. Kvika er því enn að safnast saman og þrátt fyrir að langur tími sé liðinn er enn gert ráð fyrir öðru eldgosi.
Þar sem mynstrið er breytt og kvikumagnið fyrir löngu komið upp fyrir þau mörk sem áður var horft til er þó ómögulegt að segja til um hvenær, segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands.
„Það er enginn svona skammtímafyrirvari sem við höfum lengur. Því miður er það bara þannig að við verðum eiginlega bara að fylgjast með og bíða og sjá. Ég held við verðum að gera ráð fyrir að það verði ekki mikill fyrirvari ef ef það gýs aftur.“
Hann segir kvikumagnið orðið allt að fjörutíu prósentum meira en það var fyrir síðustu gos.
„Það getur komið stærra gos, það er meira magn til staðar en það er ekkert víst að kvikumagnið gjósi allt. Við erum þó að gera ráð fyrir að gosið geti orðið stærra bara af því að það er meira til staðar.“
Skólahald hófst á ný í Grindavík í haust og hátt í þrjátíu börn eru þar í grunnskóla. Líf er þannig að færast aftur í bæinn sem er þó enn á óvissustigi almannavarna.
Loftvarnarflautur eru prófaðar mánaðarlega og rýmingaráætlanir eru fyrir hendi. Benedikt segir viðbúið að næsta gos verði á svipuðum slóðum og áður en segir fólksfjöldann þó kalla á aukið eftirlit.
„Við eigum nú samt frekar von á því að hafa góðan fyrirvara til að vara fólk í Grindavík við en auðvitað getum við ekki fullyrt um það. Þetta er alveg ákveðið áhyggjuefni, eða þýðir allavega að við þurfum að leggja meiri áherslu á að fylgjast vel með breytingum í kringum Grindavík,“ segir Benedikt.