Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem sérhæfir sig í að leita að týndum börnum, segist hafa fengið morðhótun í tengslum við störf sín. Margir mánuðir hafi liðið án viðbragða.
„Á opinberum vef þar sem einstaklingur sagði að það væri réttast bara að hann myndi fara og drepa mig. Ég tilkynnti það og það tók held ég níu eða tíu mánuði þar til komu einhver viðbrögð við því. Ég er ekki viss um að það verði neitt meira úr því,“ sagði hann í Vikulokunum í morgun.
Um 58 prósent lögreglumanna hafa orðið fyrir hótunum eða ofbeldi í starfi.
Þrátt fyrir að hafa verið hótað segir Guðmundur þó að sem betur fer lendi hann sjaldan í því eða að fólk streitist á móti honum.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, var einnig til viðtals í Vikulokunum.
Hann segir að lögreglumenn upplifi að þeir hafi litla réttarvernd. Á Íslandi, ólíkt öðrum löndum, viðgangist að streitast á móti handtöku, að hrækja á lögreglumenn og slá til lögreglumanna.
Fjölnir er ánægður með það að lögreglan hafi fengið rafvarnarvopn.
„Eftir að lögreglan fékk þessi rafvarnarvopn hafa meiðsl lögreglumanna minnkað og átök hafa minnkað. Það er mjög ánægjulegt,“ segir hann.
Fjölnir segir þetta vera vegna þess að lögreglumenn neyðist ekki til að vera jafn nálægt fólki og áður.