Mónakó tekið af gráa lista FATF
Mónakó hefur verið tekið af gráum lista FATF eftir tveggja ára aukið eftirlit og umfangsmiklar úrbætur í baráttunni gegn peningaþvætti. Ísland var á sama lista á árunum 2019 til 2020, en vera landsins á honum olli meðal annars vandræðum með millilandagreiðslur og vakti spurningar hjá erlendum lánveitendum.
Alþjóðlegi aðgerðahópurinn gegn peningaþvætti (FATF) tilkynnti í gær að Mónakó hefði verið tekið af „gráum lista“ hópsins. Tvö ár eru síðan furstadæmið var sett á lista yfir ríki sem sæta auknu eftirliti.
Búlgaría, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Fílabeinsströndin voru einnig tekin af listanum, að sögn FATF eftir fund samtakanna sem haldinn er tvisvar á ári. Ríkin hefðu lokið þeim aðgerðaáætlunum sem þau höfðu heitið að fylgja „og munu ekki lengur sæta auknu eftirliti FATF“, bættu samtökin við.
FATF, sem hefur höfuðstöðvar í París, fylgist með aðgerðum meira en 200 ríkja og lögsagnarumdæma gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ríki á gráa listanum eru talin hafa „annmarka í lykilþáttum“ baráttunnar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en vinna með FATF að úrbótum.