Íbúar úkraínska bæjarins Oleshky eru loks komnir á öruggara svæði eftir margra mánaða umsátur Rússlandshers. Það var langþráð stund þegar fólk steig út úr rútunni í dag.
Leiðin var líka löng því það er stórhættulegt og ófært með öllu að fara beint yfir víglínuna. Frá bænum sínum fóru þau með rútu til Anapa í Rússlandi. Þaðan var þeim flogið til Gomel í Belarús og komust þar loks upp í rútuna sem flutti þau yfir landamærin aftur til Úkraínu.
„Margt fólk er horfið. Mörg eru dáin. Sum stigu á jarðsprengjur. Borgin er stráð jarðsprengjum. Sum hverfi eru ekki til lengur,“ segir Valeriy Kupayev sem flúði Oleshky.
Óljóst er hversu mörg fóru en aldursbilið er breitt. Elsti íbúinn er 94 ára og sá yngsti rétt orðinn eins árs. Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hafði milligöngu um vopnahlé í bænum.
Umsátur í marga mánuði
Rússlandsher náði honum 2022 en herti umsátur um hann í maí. Neyðin var orðin mikil og fólk farið að svelta en Rússar hleyptu hvorki mat, lyfjum, hreinu vatni né öðru inn.
Ástvinir biðu sumra, en annarra ekki. „Við eigum ekki neitt. Við vitum ekki hvar við getum búið. Við höfum engan samastað hérna heldur,“ segir Mykhailo.
Seint í gær bárust svo fregnir sem stjórnvöld í Úkraínu hafa beðið eftir lengi. Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum - fyrir allt að 2,1 milljarð dollara, eða andvirði 250 milljarða íslenskra króna.
Hvernig virkar Patriot-kerfið?
Patriot-loftvararkerfið er í þrennu lagi. Radarstöð fylgist með loftförum í um 100 kílómetra fjarlægð og skotflaugum í meira en 160 kílómetra fjarlægð.
Hún sendir gögn yfir til stjórnstöðvar sem vinnur úr þeim og sendir áfram til skotstöðvar. Þar er hægt að geyma allt að 16 flugskeyti. Patriot-kerfið hefur virkað framar vonum í Úkraínustríðinu en er bæði dýrt og mannfrekt.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir mikilvægt að halda einnig áfram samtali við rússnesk stjórnvöld.
„Hvernig semjum við öðruvísi en að hitta þá, tala saman, eiga samskipti? Þá er ótalin sú staðreynd að Rússland á mörg kjarnavopn. Fólk man það kannski ekki en við minnum á það. Ég tel það mikilvægt, óháð öllu öðru, að Bandaríkin og Rússland eigi einhvers konar samskipt vegna hættunnar á stigmögnun í framtíðinni og því að eitthvað fari úrskeiðis.“