Stjórnendur helstu fyrirtækja landsins þurfa að hætta að vorkenna sér og fyrirtækjunum sem þeir eru í forsvari fyrir og horfa fram á veginn. Það er einnig orðið hvimleitt hve mikill skætingur í garð ríkisstjórnarinnar heyrist jafnan frá þeim. Það er alveg nóg að helstu fyrirtæki landsins borgi megnið af rekstri Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins sem eru opinberlega höfuðandstæðingar núverandi ríkisstjórnar og fórna með því trúverðugleika sínum að óþörfu.
Orðið á götunni: Flott uppgjör hjá Arion – samt er bankastjórinn með ótímabært nöldur og væl