Færri nýttu sér matarþjónustu Reykjavíkurborgar í haust í samanburði við sama tíma í fyrra. Verð máltíðanna var hækkað um allt að 72% í september.
Velferðarsvið rekur matarþjónustu sem er bæði veitt í mötuneytum og með því að senda mat heim til fólks. Heimsendar máltíðir eru fyrir þá sem ekki geta eldað sjálfir – til dæmis vegna aldurs eða fötlunar – og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöðvum.
Eftir að verð hækkaði hafa færri máltíðir selst. Samkvæmt svari velferðarsviðs við fyrirspurn fréttastofu fækkaði seldum máltíðum um 10,7% á milli ágúst og september. Sé miðað við júlímánuð frekar nemur fækkunin í september 15,2%.
„Fækkunin varð sérstaklega áberandi milli ágúst og september, þegar heildarfjöldi pantana dróst saman úr 26.107 í 23.304, eða um 10,7%. Mötuneytispöntunum fækkaði um 1.857, eða 11,4%, og heimsendum máltíðum fækkaði um 946, eða 9,7%.“
Tölurnar fyrir 30. og 31. október eru ekki með í tölfræðinni fyrir októbermánuð. Heildarfjöldi pantana í október er því vanmetinn og ekki að fullu samanburðarhæfur við fyrri mánuði.
Í upphafi september var einnig gerð breyting á opnunartíma mötuneytisins við Lindargötu því þar er nú lokað um helgar.
Aðsókn í mötuneytið hafði verið mest um helgar, samkvæmt svari borgarinnar. Áætlað er að breytingin hafi leitt til fækkunar um 1.400 matarskammta á mánuði. Þetta gæti skýrt stóran hluta fækkunar mötuneytispantana milli mánaða.
Pöntunum fyrir heimsendar máltíðir fækkaði einnig. Sú fækkun, upp á 9,7%, verður ekki skýrð með breyttri opnun við Lindargötu.
„Þar sem heimsendum máltíðum fækkaði um 9,7% milli ágúst og september er ástæða til að ætla að verðhækkunin hafi einnig haft áhrif á eftirspurn eftir þeim þjónustuþætti.“
Heildartölur liggja ekki fyrir fyrir októbermánuð.
„Þrátt fyrir það benda fyrirliggjandi tölur til þess að eftirspurn eftir matarþjónustunni hafi haldist minni í október en á sumarmánuðunum, eftir að verðhækkunin tók gildi í september,“ segir í svari borgarinnar.