Einn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti í nótt. Fyrr í dag var sagt frá því að íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans væru í haldi lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er það sonurinn sem leiddur var fyrir dómara. Hann var dæmdur í einnar viku gæsluvarðhald.
Tökumaður fréttastofu var við Héraðsdóm Reykjavíkur þegar lögregla kom með manninn.
Sonurinn er talinn hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn. Sá sem lifði árásina af er mikið særður og er á gjörgæsludeild.
Fréttin verður uppfærð