Arnar Sverrisson skrifar:
Í bók sinni, „Kvenfrelsari á röngunni í stjórnmálunum: Um að stofna hreyfingu með tæfum, brjálæðingum, lespum, undrabörnum, stríðsmönnum og undrakonum (A Politically Incorrect Feminist: Creating a Movement with Bitches, Lunatics, Dykes, Prodigies, Warriors, and Wonder Women), skrifaði bandaríski sálfræðingurinn, Phyllis Chesler, móðir kvenfrelsunarlækninga, um týndu stelpur (lost girls) annarrar bylgju kvenfrelsunar; Kate Millett (1934-2017), Shulamith Firestone (1945-2012), Andrea Dworkin (1946-2005), Gloria Steinem (1934-2026) og Valerie Solanas (1936-1988).
Að sögn Phyllis voru þær alvarlega bágstaddar; geðsjúkar, þunglyndar, fórnarlömb kynofbeldis, fíkniefnaneytendur og afbrotakonur, sem áttu að baki sér laskað samband við móður eða föður og höfðu látið eyða fóstri.
Engu að síður biðu þeirra stór verkefni, sagði Phyllis: „Það er ljóst, að kvenkyns kvenfrelsarar verða hægt og bítandi að ná undirtökunum í opinberum stofnunum og félögum (social institutions) og drottna yfir þeim – …. [Þ]að vinnur einfaldlega gegn hagsmunum kvenna að styðja feðraveldið eða jafnvel hið upplogna „jafnrétti“ við karla.“
Hún ítrekar: „[Í] mínum huga er enginn leið önnur fær til að sigrast á feðraveldinu eða velta því úr sessi, en að hrifsa völdin.“
Frumorsök feðraveldisins
Grundvallarfullyrðingu kvenfrelsara orðar Phyllis svo:
„Það er trúa mín, að frumorsök að stofnun feðraveldisfjölskyldunnar hafi verið þungun í kjölfar nauðgunar. Það er mikilvæg staðreynd þróunarinnar (biological fact).
Sömuleiðis var þörf karlsins fyrir að sanna erfðalegan ódauðleika sinn svo sterk, að hann taldi sig eiga rétt á að leggja undir sig konukroppinn til að tryggja það, að afkvæmi hans kviknuðu af eigin sæði.“ („Konur og sturlun“ (Women and Madness).)
Orð kvenfrelsara
Út af þessari fullyrðingu hafa kvenfrelsarar lagt í lífi, starfi, fræðum og vísindum (ef kalla skyldi), sbr.:
„Samræði fólks af gagnstæðu kyni felur í sér hreina og beina (formalized) fyrirlitningu á kvenlíkamanum. … Sonur sérhverrar konu í feðraveldinu situr hugsanlega á svikráðum við móður sína. Hann er óhjákvæmilega nauðgari eða kúgari annarra kvenna.“ (Andrea Dworkin)
„Ég bið fólk að hugleiða … sviðsmynd, þar sem við [konur] myrðum ákveðinn fjölda karlmanna í viku hverri. Hversu mörgum þyrftum við að koma fyrir, þar til feðraveldið sest niður handan borðsins og segir: „Gott og vel, látum gott heita. Hvað er í okkar valdi til að stansa aflífunina?“ … „Hversu marga karla þurfum við að drepa svo þeir hætti að nauðga okkur?“ (Mona Eltahawy)
„Það er skjall að kalla karlmann skepnu; hann er vél, reðurgervi.“ … „[K]arlinum er ljóst, að upplýst og vitundarvakin kvenþjóð boðar hans skapadægur.“
„Konan mun, hvort sem henni líkar betur eða verr, í fyllingu tímans taka öll völd, jafnvel þótt væri bara af þeirri einu ástæðu, að hún neyðist til þess – þegar öllu er á botninn hvolft hverfur karlinn af sjónarsviðinu.“
Það „rennur sífellt skýrar upp fyrir þeim [körlum], að hagsmunir kvenna séu þeirra hagur; að þeim sé einungis fært að lifa fyrir tilstuðlan kvennanna; að aukin hvatning til kvenna til að lifa lífi sínu og rætast sem konur, en ekki karlar, geri hann sjálfan lífvænlegri. Þeim er orðið ljóst, að auðveldara sé að lifa fyrir tilstuðlan kvenna, heldur en að hrifsa til sín eiginleika þeirra, …“
„Réttur kvenna til lífs er rétti karla æðri. … Þess vegna er útrýming karla góður og réttlætanlegur gjörningur, sem kemur konum vel og líta má á sem líknardráp.“ …
„Hefðu karlar vit til að bera, myndu þeir leita leiða til að verða eiginlegar konur. Þeir myndu fjárfesta í líffræðilegum rannsóknum, sem leiða kynnu til aðferða til breytinga á heila og miðtaugakerfi, svo þeir mættu í anda og líkama umhverfast í konur.“ (Valerie Solanas – 1936-1988)
Kennt í háskólum og skólum
Þetta er kennt í háskólum: „Á dæmigerðum inngangsnámskeiðum í kvennafræðum er kennt efni um nauðganir, kynáreitni, barðar konur, kynofbeldi gegn börnum, fóstureyðingar og æxlunarréttindi [kvenna], svo ekki sé minnst á efni líðandi stundar eins og kynþáttahatur, fötlunarfordóma og ráðningafordóma gagnvart ellismellum (ageism).“ (Daphne Patai og Noretta Koertge)
Snemma skal krókinn beygja. Börnum í leik- og grunnskólum á Íslandi er nú kennt um kúgun karla á kvenkyni, kynlífsbrellur og um kynjavalfrelsi. (Ertu þú Jón eða Jóna eða eitthvert annað í dag?)
Karlar eru ævinlega sekir
Eins og fram hefur komið felst kvenfrelsun í stríði gegn körlum. Konur gera kröfu um leiðréttingu á kúgun kvenkynsins allar götur aftur til frummóðurinnar. Þær eiga ótakmarkaða inneign í jafnréttisbankanum. Svo segjast þær jafnan vilja „meira jafnrétti.“ Það er eins og ókleifur hamar og mótsögn í sjálfu sér.
Karlar eru ævinlega sekir, sbr. orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forsætu Alþingis. „Það eru íslenskir karlmenn sem fremja glæpina. Við vitum alveg hverjar staðreyndirnar eru.“
Forsæta íslenska lýðveldisins talar um „karlmenn með skaðlegar hugsanir“ og sértrúarsöfnuðurinn í Stígamótum um „eitraða karlmennsku.“
Vansælum konum, sem trúa skal fortakslaust, er iðulega vísað til kvenfrelsunarmeðferðar. Þar læra þær um kúgun karla sinna (og annarra), óréttlætið gegn þeim, píslarvætti þeirra og valdeflingu.
Enda er „[V]eruleiki kvenna […] þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra [kvenna] og heilsu. … Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.“ (Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir)
Geðlæknar og sálfræðingar rýna í kvenfrelsun
Ófrelsuðum konum sumum hverjum virðist nóg um. Ein þeirra er norski geðlæknirinn, Hannah Spier. Hún hefur skrifað fjölda greina um efnið, einkum út frá alþjóðlegum sjúkdómsgreiningaskrám með áherslu á manngerðarraskanir (borderline, personality disorders.).
Einkenni svokallaðs B-klasa (cluster B personality disorders, DSM-5) eiga einkum við, telur hún. Um er að ræða miklar tilfinningasveiflur, hvatvísi, tilþrifahegðun og erfiðleika í samskiptum.
Nánar tiltekið: Ótti við höfnun eða að vera yfirgefin; óstöðug sjálfsmynd og sjálfsálit; óstöðug og stormasöm náin sambönd; tómleikatilfinning; mikil reiði og stjórnleysi; sjálfsskaði eða sjálfsvígshugsanir; endurteknar lygar eða blekkingar; yfirdrifin athyglisþörf og þörf fyrir aðdáun; uppblásin sjálfskennd og kröfur um sérmeðferð.
Ástralski sálfræðingurinn, Danielle Sulikowski, skoðar kvenfrelsun í ljósi hnignandi menningar, þar sem æxlunarsamkeppni kvenna er áberandi (intrasexual competition). Hún talar m.a. um „bælingu æxlunar af ásetningi“ (manipulative reproductive suppression). Liður í slíkri áætlun er augljóslega kynfrelsun og kynskipti.
Danielle tiltekur m. a í þessu sambandi.; veikingu fjölskyldunnar með hliðsjón af fækkun hjónabanda og minni áherslu á fjölskyldulíf; minni áherslu á uppeldi barna samhliða losaralegri fjölskyldutengslum.
Breski sálfræðingurinn og rithöfundurinn, Edward Dutton, fetar svipaðar slóðir í sannleiksleitinni. Hann hefur sérstakar áhyggjur af minnkandi greind kynstofnsins, þar eð konur, sem búa yfir mestu greindinni, eignist stöðugt færri börn, verji tíma sínum og atorku í langskólamenntun og að eltast við starfsframa.
Þetta telur Edward dæmi um „einstaklingshyggjuflótta“ (runaway individualism). Fólk leggur á slíkan flótta, þegar það flosnar upp frá trú og hefðbundnum gildum. Það eru kjöraðstæður fyrir kvenfrelsunarsefasýkina, sem raunar hefur orðið að trúarbragðaígildi. Úrkynjunin ógnar.
Hvert hefur þetta leitt?
Höfum við gengið götuna fram eftir veg? Varla! Aldrei hafa börn átt minni samskipti við feður sína. Aldrei hefur fólk – sérstaklega konur og börn – etið jafnmikið af geðlyfjum, aldrei hafa börn mátt þola jafn mikið reiðileysi, aldrei hafa jafn margir drengir helst úr lestinni og nú og stúlkur verið óhamingjusamari. Sjálfsvíg drengja (og karla) eru í hæstu hæðum. Líklega hefur menntun barna aldrei verið bágbornari.
Það er engu líkara en umkomulausum börnum sé beitt á Guð, gaddinn og samfélagsmiðla. Þau þjást í tómi og einsemd. Aldrei hefur fíkn verið jafn áberandi. Sama á við um dæmigerða menningarsjúkdóma eins og offitu, svo og hegðunarvandkvæði og geðsjúkdóma.
Gyðjan sem brást
Í bók sinni „Gyðjan sem brást: Kvenfrelsunarstríðið gegn körlum fjölskyldu og menningunni sjálfri, sem engan endi tekur,“ (The Goddess That Failed: Feminism’s Unending War Against Men, Families and Civilization Itself), segir fyrrverandi enskuprófessor og kvenfrelsari, Janice Fiamengo:
„Öllu því, sem gott er í vestrænni menningu stafar ógn af kvenfrelsun (feminism), hugsanlega fyrst og fremst hæfni kvenna til að sýna ást, skynsemi og sjálfsstjórn.“
„Kvenfrelsunin fór hvergi úrskeiðis í sögunni, hvorki fyrir eða eftir aðra bylgju … Hún átti frá fyrstu stund rætur í gremju og öfund, umlukin firrtum þrám og blekkingum um siðferðilega yfirburði kvenna.“
Nokkrar bækur eftir Edward Dutton:
- At Our Wits’ End: Why We’re Becoming Less Intelligent and What It Means for the Future
- Witches, Feminism and the Fall of the West
- The Past Is a Future Country: The Coming Conservative Demographic Revolution
- Spiteful Mutants: Evolution, Sexuality, Religion, and Politics in the 21st Century
- Breeding the Human Herd: Eugenics, Dysgenics and the Future of the Species
- Woke Eugenics: How Social Justice Is a Mask for Social Darwinism
Höfundur er sálfræðingur.